Það er draumur hjá mörgum að rífa sig úr hlekkjum hversdagsins og stofna til heimilis á suðrænni slóðum í heitara loftslagi og við allt aðrar aðstæður en til þekkjast á Íslandi. En draumar geta orðið að veruleika eins og dæmin sanna en fjöldi íslendinga ásamt fjölda evrópubúa hafa sest að á Costa Blanca svæðinu undanfarin misseri. Hér verður reynt að draga allt það fram sem gott er vita ef láta á drauminn rætast.
|
|
Það sem einkennir lífið á Spáni er gott veðurfar, rólegheit, yfirvegun og fjölskylduvænt umhverfi. Það er óhætt að fullyrða að spánverjar láta ekki stressa sig upp heldur láta þeir allt hafa sinn tíma og ytra áreiti kemur þeim ekki úr jafnvægi. Það eru orð að sönnu þegar sagt er að blóðið renni hægt í spánverjunum þó þeir geti verið blóðheitir. |
|
Read More...
|
|
|
Fyrir marga er það stór og mikil ákvörðun að stíga þau skref að flytjast búferlum til Spánar annað hvort til skemmri eða lengri tíma. Áður en formleg ákvörðun um flutning frá Íslandi til Spánar er tekin þarf að huga að ýmsu og því verður hér að neðan tíundað í nokkrum liðum að hverju þarf helst að huga. |
|
Read More...
|
|
|
Útlendingi á Spáni er heimilt að dvelja í landinu í allt að 6 mánuði en eftir þann tíma verður viðkomandi að yfirgefa landið eða sækja um dvalarleyfi. Einnig verður sá sem vill fjárfesta í fasteign, bifreið eða opna bankareikng hafa spænska kennitölu eða NIE-númer og skiptir ekki máli hvort hann sé ferðamaður eða með fasta búsetu. Hér verður tíundað í grófum dráttum hvaða reglur gilda gagnvart Íslendingum og hvernig best er að snúa sér í þessum málum. Einnig vikið að skattalegu hagræði þessu tengt. |
|
Read More...
|
|
|
Nokkuð hátt atvinnuleysi er á Spáni í samanburði við það sem þekkist á Íslandi en þó má segja að allir duglegir og drífandi einstaklingar sem koma til Spánar með opnum huga geti fengið vinnu á Costa Blanca svæðinu og sérstaklega sumarmánuðina þar sem svæðið er mikið ferðamannasvæði. Ferðamannavertíðin sem stendur yfir í 4-6 mánuði á ári kallar á mikið vinnuafl. Verður nú
vikið að nokkrum atriðum sem gott er að vita. |
|
Read More...
|
|
|
Það kemur kannski einhverjum á óvart þegar sagt er að skólakerfið á Spáni sé betra en það íslenska. Þetta eru stór orð en umsagnir margra foreldra og nemanda sem hafa samanburðinn frá sínu heimalandi styðja þessa fullyrðingu. En auðvitað fylgja spænska menntakerfinu ýmsir kostir og gallar eins og gengur en hér að neðan verður reynt að gera góð skil á spænska menntakerfinu. |
|
Read More...
|
|
|
Um 60% heilbrigðiskerfisins á Spáni er einkarekið og nauðsynlegt er að gera sér grein fyrir því að sem Íslendingur með evrópska sjúkratryggingarkortið hefurðu ekki endilega aðgang að öllum spítölum eða læknastofum Costa Blanca svæðisins. Hér verða týndir til nokkrir hlutir sem gott er að vita af og hafa að leiðarljósi þegar leita þarf eftir þjónustu í spænska heilbrigðiskerfinu: |
|
Read More...
|
|
|