Með
aukinni samkeppni um flug til Alicante og aukins sætaframboðs er
það orðinn mjög góður og hagkvæmur ferðakostur að ferðast á eigin vegum
til Costa Blanca. Nú er leikur einn að setja saman sína ferðatilhögun
og hér að neðan viljum við draga fram helstu gistimöguleika á Costa
Blanca svæðinu.
|
|
Á Costa Blanca svæðinu er mikið framboð af góðum fasteignum í eigu einstaklinga til leigu. Um er að ræða allar stærðir og gerðir eigna eða allt frá litlum studíoíbúðum og upp í stór og mikil hús og ættu því allir að finna sér eitthvað við sitt hæfi. Einnig geta íslenskir eigendur fasteigna skráð eignir sínar til leigu í gegnum leiguíbúðarvef www.costablanca.is. Kannið málið hér.
|
|
Read More...
|
|
|
Á Costa Blanca ströndinni er mikið framboð gistirýma á hinum ýmsum hótelum af öllum stærðum og gæðum. Sóldýrkendur geta valið um að gista annars vegar við iðandi mannlíf niður við ströndina eða valið meiri rólegheit upp í landi. Hér að neðan er unnt að athuga með laust hótelrými.
|
|
Read More...
|
|
|
Ferðaskrifstofurnar hafa í mörg ár boðið sólþyrstum ferðalöngum svokallaðar pakkaferðir þar sem í boði er flug, gisting og íslensk farastjórn. Flestir kannast við þessa tilhögun á sumarfríi sínu enda er hún aðeins í boði yfir sumarmánuðina. |
|
Read More...
|
|
|
Undanfarin
ár hefur færst í aukana að íslensk orlofsfélög hafa annað hvort
fest kaup á eða leigt til skemmri tíma fasteignir til
orlofsdvalar fyrir félagsmenn sína. Þessar eignir eru flestar á
Torrevieja svæðinu og viljum við hér að neðan draga saman á einn stað
upplýsingar um þau helstu orlofsfélög sem bjóða upp á orlofsíbúðir
fyrir félagsmenn sína. |
|
Read More...
|
|
|
Íbúðaskipti
er gistimöguleiki sem íslendingar hafa ekki mikið nýtt sér en okkur
þykir rétt að nefna þennan gistimöguleika. Íbúðaskipti ganga út á
það eins og nafnið kemur til kynna að tvær fjölskyldur í sitt í hvoru
landinu hafa íbúðaskipti á heimilum sínum. |
|
Read More...
|
|
|