
Þjónustufyritækið Costablanca.is býður nú íslenskum golfurum að bóka rástíma á golfvelli á Costa Blanca ströndinni á besta verðinu í gegnum netið. Margir Íslendingar hafa nýtt sér hagstætt verð golfbúðarinnar Golf Factory en nú getum við hjá Costablanca.is boðið enn betra verð. Bókunarferlið er mjög einfalt. Sent er meil á info@costablanca.is með eftirfarandi upplýsingum: Fullt nafn þess sem bókar - Fjöldi golfara - Hvaða golfvellir - Hve margar holur - Hvaða dagsetningar - Hvaða tíma dags og hvort bóka eigi golfbíla. Innan 24 klst er meilinu svarað með heildarverði og lagt skal inn á reikning Costablanca.is á Spáni (innan tíðar verður unnt að greiða með kreditkorti). Þegar greiðsla hefur borist eru golf "voucherarnir" sendir á meili til þess sem bókaði og unnt er að prenta þá út og sýna á hverjum golfvelli fyrir sig. Auðveldara getur það ekki verið. Bókaðu golfið á besta verðinu áður en haldið er til Spánar. Kíkið á verðskránna hér
Það er ekki ofsögum sagt að Costa Blanca svæðið sé paradís golfarans en á svæðinu er fjöldinn allur af golfvöllum sem eru fyrsta flokks og margir hverjir hannaðir af fremstu golfurum heims eins og José Maria Olazabal og Sevariano Ballaesteros. Vellirnir á svæðinu eru opnir öllum og eru eins ólíkir og þeir eru margir en hægt er að velja að spila á mjög opnum og breiðum völlum eða þröngum völlum þar sem er mikill hár trjágróður eða gil og brekkur sem gera vellina erfiða fyrir suma. Ráðlegt er að panta rástíma fyrirfram en það er misdýrt að spila á þessum völlum eða frá 30 til 80 evrur. Þess ber þó að geta að stundum er unnt að kaupa opna passa sem annað hvort gilda í nokkra daga eða í ákveðinn fjölda hringa. Einnig er unnt að leigja á flestum völlunum golfbíla, kerrur eða jafnvel golfsett og kostar golfbíllinn um 30 - 35 evrur í leigu. Opnunartími golfvalla er yfirleitt frá kl 08:00 og fram undir myrkur. Á hverjum velli er í klúbbhúsunum yfirleitt boðið upp á mikla þjónustu fyrir golfarann eins og t.d. veitingastaðir, golfbúðir og jafnvel líkamsrækt og dekur. Þessum golfvöllum verður nú gerð skil en áhugasömum golfurum er velkomið að senda okkur fyrirspurnir á info@costablanca.is ef þið þurfið frekari upplýsingar. Einnig getum við lagt ykkar lið við t.d. pöntun á rástíma á golfvöllum, gistingu, bílaleigubíl ofl.


Golfvöllurinn La Finca (nr: 12 á kortinu)
Staðsetning: Costa Blanca suður - Orihuela rétt við Torrevieja
Vallargjöld: Frá 68 evrum
Lýsing: La Finca golfvöllurinn er staðsettur í ósnortinni náttúrunni í fallegu umhverfi og er útsýni mikið til allra átta. Völlurinn er opinn öllum þeim sem langar að spila golf og njóta um leið stran darinnar, siglingaklúbba ofl sem er staðsett aðeins í nokkra mínutna fjarlægð. La Finca völlurinn er með nýrri völlum Costa Blanca svæðisins en hann er hannaður með það fyrir augum að geta hýst evrópsku mótaröðina í golfi. La Finca golfvöllurinn bíður upp á fjölbreyttustu flatir allra golfvalla á Costa Blanca svæðinu. Einnig má geta þess að völlurinn hefur varaholu sem þýðir að ef loka þarf einni holu vegan lélegs ástands þá er alltaf unnt að ljúka við að spila 18 holur. Nokkuð er um tjarnir og læki við völlinn. Góður völlur sem vert er að spila.

Golfvöllurinn Las Ramblas (nr: 13 á kortinu)
Staðsetning: Costa Blanca suður – Orihuela rétt vi ð Torrevieja.
Vallargjald: Frá 42 evrum
Lýsing: Þessi 18 holu völlur er staðsettur í hæðóttu landslagi sem gerir hann mjög áhugaverðan fyrir þá golfara sem vilja taka áhættu við spilamennsku. Landslagið við völlinn
gera
upphafshöggin oft erfið. Öll trén og allar tjarnirnar og vatnahindranirnar á vellinum
gera
völlinn mjög áhugaverðan og um leið aðlaðandi. Þessi völlur er staðsettur rétt við Villa Martin völlinn og er því landslagið mjög svipað honum.
Sjá nánar um Las Ramblas

Golfvöllurinn Campoamor Golf (nr: 14 á kortinu)
Staðseting: Costa Blanca suður - Orihuela - rétt við Torrevieja
Vallargjald: Frá 55 evrum.
Lýsing: Golfvöllurinn Real Club Golf Campoamar er byggður á grunni sveitaseturs þar sem allt umhverfi er ósnortið sveita umhverfi þó íbúðabyggð sé orðinn í nálægð við völlinn. Þessi 18 holu golfvöllur liggur m.a. í gegnum tvær lægðir í landslaginu sem gerir það að verkum að öldóttur hryggur í landslaginu verndar golfarana fyrir vindi. Lofslagið og veðráttan er fyrir vikið mjög góð sem gerir völlinn mjög eftirsóttan allt árið um kring. Þess má að lokum geta að íslenskur golfkennari er starfandi við golfvöllinn.
Sjá nánar um Campoamar Golf

Golfvöllurinn Ifach Golf
Staðsetning: Costa Blanca norður – Moraira (Benissa) – norðan
Alicante
og Benidorm
Vallargjöld: Frá 33 evrum 
Lýsing: Golfvöllinn má kalla sveitavöll og er umhverfið fallegt en hann er 9 holu völlur þar sem 6 holur eru par 3 og 3 holur eru par 4. Jafnvel þó brautirnar sé stuttar þá eru brautirnar nokkuð mjóar sem gerir það að verkum að það reynir verulega á tækni golfarans. Völlurinn er nokkuð erfiður.
Sjá nánar um Ifach Golf
Golfvöllurinn Javea Golf.
Staðsetning: Costa Blanca norður – 90 km norðan
Alicante
á leiðinni til
Valencia
.
Vallargjald: Frá 46 evrum
Lýsing: Völlurinn er í góðu skjóli við klettinn
San Antonio
sem rís hátt til himins og gerir allt um umhverfi stórfenglegt. Kringum völlinn er mikill gróður og þétt við brautirnar liggja appelsínutré og annar gróður sem gerir það að verkim að mikil veðursæld er á þessum golfvelli enda er hann mikið spilaður allt árið um kring. Völlurinn er aðlaðandi með hallandi brautum og velviðhöldum flötum. Javea Golf.

Golfvöllurinn Don Cayo Golf (nr: 5 á kortinu)
Staðsetning:
Alicante
Vallargjald: Frá 42 evrum
Lýsing: Don Cayo golfvöllurinn er einn af rótgrónu stu golfvöllum Costa Blanca svæðisins en hann var opnaður árið 1974 og staðsettur við fjallsrætur Sierra Bernia fjallasvæðisins. Völlurinn er staðsettur í sveitahéraðinu Altea en bærinn er þekktur fyrir einstaka fegurð og mikla sögu. Hringurinn er 3.078 metrar að lengd með erfiðum holum þó sérstaklega 5ta holan sem er 580 metrar par 5 eða 6ta holan sem er sleginn upp á við 227 metra par 3. Holurnar eru allar skemmtilegar yfirferðar og er útsýnið nokkuð sem situr í golfurunum eftir að hafa spilað þennan völl.

Sjá nánar um Don Cayo Golf
Staðsetning: Costa Blanca norður/suður –
San Juan
- nærri
Alicante
Vallargjald: Frá 67 evrum
Lýsing: Sumir vilja meina að
Alicante
völlurinn beri af öðrum völlum á Costa Blanca svæðinu. Völlurinn er hannaður af Severiano Ballesteros og ber völlurinn einkenni hans þar sem nokkrir lækir við völlinn eru S-laga. Þessi 6270 metra langi 72ja para golfvöllur krefst mikillar natni golfarans og þarf virkilega að leggja sig fram við að nota réttu kylfurnar á réttum stöðum. Þrjár holur eru par 3, aðrar þrjár par 4 og þrjár holur par 5. Völlurinn hefur virkilega fallegt umhverfi með mikið af grænum svæðum og frábær vötn sem reyna á þolgæði golfarans.

Sjá nánar um Alicante Golf

Golfvöllurinn Bonalba Golf (nr: 7 á kortinu)
Staðsetning: Costa Blanca suður - Í Mutxamiel – 2 km frá Alicante Golf golfvellinu
Vallargjöld: Frá 60 evrum
Lýsing: Völlurinn er einn sá besti en þrátt fyrir að hafa verið opnaður fyrir um 10 árum þá hafa helstu stórmót farið fram á vellinum og þar með áunnið sér mikla viðurkenningu í golfheiminum. Völlurinn sem er hannaður af Ramón Espinosa er nokkuð tæknilegur ef svo má að orði komast og er með stórkostlegu útsýni til sjávar en vegna staðsetningar er l oftslagið mjög gott við völlinn og gott að spila golf á þessum velli alla daga ársins. Völlurinn er 18 holu 72 para völlur sem er byggður upp á hrygg en ekki sléttlendi sem gerir það að verkum að brautirnar og flatirnar eru öldóttar svo reynir á herkænsku golfarans.
Flókin hönnun Bonalba vallarins gerir völlinn áhugaverðan og mjög skemmtilegan að spila. Völlurinn er mikil áskorun fyrir golfarann og það má segja með sanni að engin hola sé eins og því ætti engum að leiðast að spila golf á Bonalba golfvellinum.
Sjá nánar um Bonalba golf
Golfvöllurinn Alenda Golf (nr: 8 á kortinu)
Staðsetning: Costa Blanca suður - Monforte del Cid – rétt við
Alicante
Vallargjald: Frá 52 evrum
Lýsing: Alenda golfvöllurinn var opnaður 1997 og býður upp á 18 holu völl, par 72 og er 6257 metrar að lengd. Völlurinn er staðsettur í þó nokkurri hæð yfir sjávarmáli og er sjávarútsýnið mik ið. Klúbbhúsið er endurbyggt gamalt bændabýli þar sem finna má veitingastað, kaffihús, búningsherbergi og golfbúð. Á vellinum er einnig til staðar æfingasvæði og púttsvæði. Þess má geta að nokkuð auðvelt er að spila fyrstu 9 holurnar þar sem brautirnar frá upphafsteig eru nokkuð breiðar og lítið sem reynir á tækni. Hins vegar snýst dæmið við þegar seinni 9 eru spilaðir en þar reynir meira á tækni og nákvæmni hjá golfaranum. Þeir sem eru góðir í stutta spilinu og pútta yfirleitt mjög vel ættu að líka vel við Alenda golfvöllinn.
Sjá nánar um Alenda golf

Golfvöllurinn El Plantio Golf (nr: 9 á kortinu)
Staðsetning: Costa Blanca suður - Í Elche nærri
Alicante
Vallargjald: Frá 75 evrum
Lýsing: Golfvöllurinn sem er nýlegur er staðsettur 3 km frá miðborg
Alicante
en völlurinn er svokallaður úthverfisvöllur. Völlurinn er annars vegar 18 holu völlur og hins vegar 9 holu völlur se m gerir öllum kleift að spila völlinn. Á vellinum er einnig góður æfingavöllur og þar er staðsettur alþjóðlegur golfskóli. 18 holu völlurinn er par 82 en 9 holu völlurinn er með par 3 holum. Völlurinn er vel hannaður og umlukinn trjám og gróðir. Flatirnar eru góðar og er hver braut þægileg viðureignar og hentar völlurinn vel fyrir alla fjölskylduna.
Sjá nánar um El Plantio Golf

Golfvöllurinn La Marquesa Golf (nr: 10 á kortinu)
Staðsetning: 58 km frá
Alicante 
Vallargjald: Frá 53 evrum
Lýsing: Völlurinn er staðsettur á flatlendi á milli tveggja fjallgarða og er lögun vallarins þannig að hann skiptist á langar brautir og stuttar. Það er ekki mjög erfitt að spila þennan völl og geta golfarar á öllum stigum notið hans. Erfiðasti þátturinn í vellinum er kannski helst einkennandi lögum flatanna en þær geta verið með flóknum brotum.
Sjá nánar um La Marquesa Golf

Golfvöllurinn Mosa Trajectum Golf
Staðsetning: Costa Blanca suður – nærri
Murcia
suður að Torrevieja
Vallargjald: Frá 65 evrum
Lýsing: Völlurinn var samþykktur til að hýsa PGA evrópsku mótaröðina sem fram fór 22.- 24. október 2004 og er það mikil viðurkenning fyrir völlinn og sýnir hvaða gæði völlurinn hefur upp á að bjóða.
Mosa golfvellinum má skipta í raun í 2 velli.
Annars vegar 27 holu meistaravöllur sem er hannaður og byggður upp eftir ströngustu kröfum og gæðum PGA og USGA og hins vega 9 holu par 3 áskorunarvöllur “challenge course”.
Meistaravöllurinn er byggður upp sem þrír 9 holu vellir þar sem hver völlur hefur sitt sérkenni og er umhverfi allt mjög fjölbreytt.
Mosa golfvöllurinn er einstakur í sinni röð og mikil upplifun að spila þennan völl.
Sjá nánar um Mosa Trajectum Golf

Golfvöllur La Manga Club golf (nr: 15 á kortinu)
Staðsetning: Costa Blanca suður -
Murcia
– rétt sunnan við Torrevieja.
Vallargjald: Frá 77 evrum – 3 hringir á 214 evrur – 5 hringir á verð 4ra og 7 á verði 5
Lýsing: La Manga vellirnir eru í raun þrír þ.e.a.s. South Course – Nort Course og Wes Course.
La Manga South Course völlurinn var upphaflega hannaður af Robert Putman 1971 og var síðan endurskipulagður 1992 af Arnold Palmer. Helstu breytingar voru þær að meiri fjölbreytni var sett í flatirnar, meira af tjörnum og lækjum og meira að trjám og gróðri. Allt þetta færði völlinn fram á við til samræmis við nútímahönnun og gerir völlinn mjög áhugaverðan.
La Manga North völlurinn var allur enduskipulagður 2000-2001 og í augum margra er þessi völlur toppurinn á La Manga völlunum þremur. Þessi keppnisvöllur er í h æðóttu landslagi þar sem þræða þarf á milli hárra pálmatrjáa, tjarna og annarra hindrana á vellinu.
La Manga West völlurinn er í uppáhaldi hjá mörgum golfurum þar sem á nokkrum brautum reynir verulega á hæfileika golfarans. Sumar brautanna eru nefnilega mjóar og þarf oftar en ekki að slá blinda bolta til að ná inn á flöt fram hjá mörgum hindrunum. Útsýni er hér mjög fallegt og umhverfi einstakt. Það er spennandi að spila þennan völl en mörgum golfurum finnst að á þessum velli reyni á alla hæfileika golfarans.
Sjá nánar um La Manga Club Golf
|