Við erum á Facebook      
Leiguíbúðir Bílaleiga Golf Fasteignaleit Spjall
09.jpg
Forsíða
Heimasíðan
Svæðið/Borgir
Bílar og samgöngur
Menning og hefðir
Flug
Gisting
Afþreying
Viðburðir
Fasteignahornið
Lögfræðihornið
Þjónustuhornið
Gott að vita
Búseta á Spáni
Vegvísir
Fréttaskot
Smáauglýsingar
Myntbreytir
Myndagallerý
Vefmyndavélar
Gera að upphafssíðu
FYRIRSPURNIR
-
Innskrá/Netklúbbur

Notandi

Lykilorð

Muna eftir mér
Fá sent lykilorð
Ekki með aðgang? Stofna aðgang
Skoðanakönnun

Hvaða væntingar berðu til beins flugs til Alicante sumarið 2011 ?
  
Viðburðardagatal

September 2010
S M Þ M F F L
2930311 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 1 2
Reykjavík 
Click for Reykjavik, Iceland Forecast

Alicante

Click for Alicante, Spain Forecast
 

Jólahlaðborð á veitingastaðnum Caruso á Spáni - Fréttatilkynning 06.11.2009

Senn líður að jólum og daganna 11. til og með 13. desember verður íslenskt jólahlaðborð á veitingastaðnum Caruso í Torrevieja. Einnig mun söngvarinn Eyjólfur Kristjánsson mæta með gítarinn til Spánar og spila ljúfa tónlist undir borðhaldi alla daganna og því viljum við hvetja Íslendinga til að panta borð í tíma í síma 965-706454. Reynslan sýnir að mikill fjöldi Íslendinga hefur ávalt mætt á Caruso þegar Eyvi hefur mætt á svæðið og því vissari að tryggja borð í tíma. Sjá má nánari upplýsingar um matseðilinn með því að smella hér.

Fiskur og blús á Mangobar - Fréttatilkynning 04.11.2009

Eftir mjög vel heppnað "Halloween party" síðastliðið laugardagskvöld þar sem tugir Íslendinga mættu og skemmtu sér konunglega við lifandi tónlist hafa eigendur Mangobar ákveðið að standa fyrir reglulegum viðburðum í allan vetur. Á morgunn fimmtudag verður "Fiskur og blús" á Mangobar þar sem boðið boðið verður upp á fisk "A La Mango" fyrir aðeins 5 evrur og lifandi blústónlist frá kl 19:00 til 22:00. Blúsbandið er skipað saxafónleikara, píanóleikara og bongótrommuleikara. Allir velkomnir á Mangobar í Cabo Roig.

CAM og Caja Murcia sparisjóðirnir að sameinast ? - Fréttatilkynning 04.11.2009

Fjölmiðlar á Costa Blanca svæðinu hafa undanfarna daga verið að birta fréttir þess efnis að Caja Murcia sparisjóðurinn og CAM sparisjóðurinn eigi í samningaviðræðum um mögulegan samruma. Stjórnarformaður CAM, Modesto Crespo, neitaði þessu í viðtali við fjölmiðla og sagði að engar formlegar eða óformlegar viðræður eigi sér stað og hnýtti svo á því að CAM væri það stór sparisjóður að hann gæti auðveldlega starfað á landsvísu upp á sitt einsdæmi. Ef að þessar fréttir reynast réttar og að þessi tveir sparisjóðir sameinist þá er þetta í fyrsta skipti í bankasögu Spánar sem tveir bankar frá sitt hvorri sýslunni sameinast en höfuðstöðvar CAM eru í Alicante og höfustöðvar Caja Murcia eru í Murcia. 

Veitingastaðurinn Caruso boðar í Halloween veislu - Fréttatilkynning 31.10.2009

Í kvöld verða víða Halloween partý á meðal Íslendinga á Costablanca.is ströndinni og okkur er ljúft að koma því á framfæri að hinn margrómaði veitingastaður Caruso í Torrevieja mun bjóða upp á sérstakan Halloween matseðil í tilefni dagsins. Einnig verður garðurinn  við veitingastaðinn skreyttur í tilefni dagsins til að skapa eftirminnilega stemmningu. Hér að neðan birtist matseðill dagsins: 
Forréttur:sjávarréttasúpa caruso eða chef salat
Aðalréttur:Entrecote með Burgundy sósu eða steiktur þorskur með hvítvínssósu
Desert:Heit súkkulaðikaka með ís eða Baileys ís terta
Verð á mann - 26,50 evrur og innifalið er flaska af léttvíni hússins.

Halloween party og kynningarhátið - Fréttatilkynning 29.10.2009

Okkur hjá Costablanca.is er ljúft að kynna mikla hátíðardagskrá og Halloween-hátið á Íslendingabarnum Mangobar næstkomandi laugardag. Hátiðin mun byrja á hádegi og standa fram á rauða nótt. Að sögn eigenda staðarins verður frá og með hádegi og til að verða 15:00 boðið upp á lifandi salsa tónlist og sangría og gestum staðarins verður boðið að stíga dansinn. Einnig mun danshópurinn bjóða upp á Michael Jaksson danssýningu þar sem ungir dansarar munu taka dansspor meistarans. Einnig mun uppblásinn hoppukastali vera á staðnum fyrir yngstu kynslóðina á meðan mamma og pabbi taka snúninginn í suðrænni sveiflu.  Upp frá dansfjörinu eða frá kl 16:00 mun Mango sjálfur byrja að framreiða "smakkrétti" af hinum nýja matseðli staðarins sem verður kynntur formlega á þessum degi en vegna góðra undirtekta síðustu vikna hefur matseðillinn þrefaldast að stærð. Með smakkinu verður boðið upp á glas af bjór eða svalandi sangria. Um kvöldið eða frá kl 21:00 mun síðan fara fram val á flottasta og frumlegasta "halloween" búningnum en allir gestir eru beðnir að klæða sig upp í tilefni dagsins en allt starfsfólk staðarins mun klæða sig upp og staðurinn verður allur skreyttur að hætti dagsins. Að lokum verður lifandi karókí þar sem íslenska söngkonan Kolbrún Sveinbjörnsdóttir mun stíga á svið og taka gömlu góðu íslensku dægurlögin sem lifa endalaust á milli kynslóða. Við hvetjum alla Íslendinga nær og fjær á Costablanca ströndinni að leggja leið sína í Cabo Roig hverfið og taka þátt í hátíðinni en þetta framtak eigenda Mangobar er aðdáunarvert. 

Íslendingabarinn Mangobar slær í gegn - Fréttatilkynning 27.10.2009

Eins og við höfum greint frá hér á síðunni opnaði í lok ágúst íslendingabar í Cabo Roig hverfinu sem ber heitið "Mangobar" og hefur staðurinn greinilega slegið í gegn að undanförnu. Staðurinn hefur fengið það orð á sig að bjóða upp á alvöru hamborgar með alvöru bernaise sósu og einfalda og ljúffenga rétti. Einnig hefur staðurinn fengið nokkra umfjöllun í staðarblöðum á svæðinu þar sem maturinn er dásamaður en nú síðast í dag birtist blaðagrein í Coastrider blaðinu. Eigendur staðarins hafa einnig náð að höfða til Íslendingana á svæðinu en síðastliðinn sunnudag var boðið upp á "schnitzel" með íslensku rauðkáli fyrir aðeins 5 evrur og var fullt út að dyrum. Að sögn eigandanna verður þetta fastur liður alla sunnudaga í vetur en næstkomandi laugardagskvöld verður dagskrá vetrarins kynnt betur en heyrst hefur að boðið verði upp á ýmsar áhugaverðar nýjungar fyrir Íslendinga á svæðinu.  Mikið stendur til á laugardaginn þegar haldin verður "Halloween-hátið" og einnig mun mæta á svæðið enginn annar en gestakokkurinn Úlfar Eysteinsson og elda fyrir Íslendinga íslenska fiskirétti til að leyfa gestum og gangandi að smakka. Bjórheildsali staðarins mun einnig bjóða upp á drykki með réttunum. Sjá má myndir frá því á sunnudaginn hér að neðan...

Read More...
Alicante hafnar IKEA - Fréttatilkynning 26.10.2009

Fyrir helgina varð ljóst að fyrirhuguðum framkvæmdum við risaverslun IKEA við Alicante borg hefur verið ýtt út af borðinu í bili. Ástæðan er sú að samtök fyrirtækja í verslunarrekstri í Alicante borg samþykkti á fimmtudaginn að leggjast gegn hugmyndum IKEA manna um opnum þessarar verslunar. Þeir vilja meina að hugmyndir IKEA gangi út á að reisa risavaxna verslun sem muni verða stærsta verslun þeirra í evrópu og um leið muni slík verslun kæfa niður alla aðra verslun á svæðinu og þýða fjölda gjaldþrota minni fyrirtækja. Mikill þrýstingur er á borgarstjóra Alicante, Sonia Castedo, frá öllum hliðum en aðrir þrýstihópar vilja IKEA á svæðið enda muni slík verlsun skapa gífurlega mörg störf. Ljóst er að borgarstjórinn á erfitt verk fyrir höndum til að reyna að miðla málum í þessari deilu en aðilar telja að hætta verði á að IKEA færi sig um set og leiti til annara bæjarfélaga eins og til Benidorm ef niðurstaða kemst ekki í málið fljótlega.   

Hugleiðingar varða beina flugið til Spánar
Síðustu daga höfum við hjá Costablanca.is fundið fyrir mikilli reiði og óánægju á meðal íslenskra sumarhúsaeiganda og annarra íslendinga sem ferðast mikið á milli Alicante og Íslands með beinu flugi. Kornið sem fyllti mælinn voru atburðir síðastliðins fimmtudags þegar hátt í 3ja tíma seinkun var á flugi Iceland Express frá Íslandi til Spánar og síðan í ofanálag þurfti á leiðinni til baka til Íslands að nauðlenda á London Gatwick vegna vélarbilunar í öðrum hreyflinum. Þurftu farþegar að bíða í um 4 klst í  Gatwick áður en önnur vél kom á staðinn til að flytja farþega til Íslands. Síðan segir forstjóri Iceland Express við fréttamiðla: "ekki búast við því að sama vélin yrði notuð aftur í leiguflug á vegum flugfélagsins" Endurspeglar þetta svar ekki það ástand sem hefur verið á þessari flugleið á milli Keflavíkur og Alicante ? Er Iceland Express að nota leiguvélar á þessari flugleið í staðinn fyrir sínar eigin vélar ? Er þessi flugleið ekki í sama forgangi og aðrar flugleiðir ? Það er ekki að ástæðulausu sem Íslendingar á Costa Blanca svæðinu séu farnir að kalla Iceland Express "Seinpress" vegna síendurtekinna seinkana.  Gaman væri að sjá tölur þess efnis hversu oft seinkanir hafa verið á þessari flugleið ? Hvað er það sem veldur ? Eru líka svona miklar seinkanir á öðrum flugleiðum Iceland Express ? Afhverju sjá allir flugrekstaraðilar og ferðaskrifstofur á Íslandi, sem meira eiga að heita að vera í samkeppni, sér hag í því að vera með ítarlegt samstarf og samnýtingu á flugsætum á þessari tilteknu flugleið en á engri annarri flugleið ? Er það t.d. vegna þess að ferðaskrifstofurnar fá að kaupa tiltekin fjölda flugsæta af Iceland Express á mun lægra verði en bókunarvefurinn segir til um til að geta boðið upp á pakkaferðir til sinna viðskiptavina ? Eru sem sagt þeir sem aðeins greiða fyrir stakt flugsæti að greiða niður flugsæti þeirra sem eru í pakkaferðum í gegnum ferðaskrifstofurnar þar sem boðið er upp á hótel, fullt fæði, golf ofl. Hvar er samkeppnin og er þetta ekki ólöglegt samráð ? Afhverju er ekki unnt að bjóða upp á beint flug til Alicante 1 x í viku yfir háveturinn ? Er það vegna þess að ferðaskrifstofurnar eru þá ekki lengur að kaupa flugsæti af Iceland Express fyrir sínar golf- og pakkaferðir heldur einblína á Kanaríeyjar og aðra áfangastaði á þessum tíma ?  Er reynslan á flugi 1 x í viku yfir veturinn 2007/2008 mjög slæm ? Hvað réttlætir það að fólk sem bókar til dæmis með Vitaferðum til að geta flogið með flugvélum Icelandair þurfi síðan að kyngja því þegjandi og hljóðalaust að fljúgja með flugvélum Iceland Express eða öðrum leiguvélum á þeirra vegum ? Hvar er réttlætið í því að fólk hefur bókað í gegnum vefinn „betri sæti“ í gegnum bókunarvef Iceland Express og greitt fyrir en síðan þegar komið er um borð hefur öll sætaskipan riðlast vegna þessi að flugvélin er ekki sú sama og var gert ráð fyrir í gegnum bókunarvefinn og fólk fær ekki sín fyrirfram bókuðu sæti ? Afhverju býður bókunarvefur þessara flugrekstraraðila upp á flug á ákveðnum dagsetningum til Alicante og síðan með nokkurra vikna eða jafnvel daga fyrirvara er haft samband við flugfarþega og tilkynnt um niðurfellingu á flugi ? Allar þessar spurningar vakna í ljósi reynslu síðustu vikna og mánaða. Gaman væri að fá svör við þessum spurningum og einnig heyra hvort hagsmunafélag íslenskra sumarhúsaeiganda á Spáni hefur eitthvað um þetta að segja.
Fh. Costablanca.is - Bjarni Sig

 

                                 

 

 

 

Fyrsti vetrardagur og klukkunni breytt - Fréttatilkynning 23.10.2009

Á sunnudaginn eða 25. október er fyrsti vetradagurinn á Íslandi og á sama tíma er klukkunni breytt yfir í vetrartímann í evrópu. Á sunnudaginn eða síðasta sunnudag októbermánaðar er klukkan færð fram um 1 klst sem þýðir að aðeins mun vera um 1 klst á milli Íslands og Spánar. Við viljum því hvetja Íslendinga á Spáni að gæta að sér og breyta tímanum áður en haldið er til vinnu eða skóla á mánudagsmorgunn.

Messa og sunnudagsskóli - Fréttatilkynning 22.10

Sunnudaginn 25. október kl. 11:00 verður messa og  á sama tíma sunnudagaskóli fyrir börnin í umsjá Lindu Brynjólfsdóttur. Messan og sunnudagaskólinn verða í norsku sjómannakirkjunni (c/Ravel 4, Urb. La Siesta.)  Ragnheiður Karítas Pétursdóttir þjónar fyrir altari og sungnir verða íslenskir sálmar við undirleik Jukka Hovila og söng kórsins. Eftir messu verður hægt að kaupa kaffi og meðlæti í kaffiteríu kirkjunnar og eiga stund saman. Væntanleg fermingarbörn eru beðin um að skrá sig í fermingarfræðslu á rkp@simnet.is eða í síma 669151237 Íslendingar eru hvattir til að koma í hús Drottins, og eiga samfélag saman.
Guð gefi ykkur öllum góðar stundir.
Ragnheiður Karítas Pétursdóttir

<< Byrjun < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Nsta > Endir >>

 
Modemnet
Mangóbar
Logobíll
Smáauglýsingar
Ljósmyndun
RÚV á Spáni
NIE númer
Caruso á Spáni