Við erum á Facebook      
Leiguíbúðir Bílaleiga Golf Fasteignaleit Spjall
01.jpg
Forsíða
Heimasíðan
Svæðið/Borgir
Bílar og samgöngur
Menning og hefðir
Flug
Gisting
Afþreying
Viðburðir
Fasteignahornið
Lögfræðihornið
Þjónustuhornið
Gott að vita
Búseta á Spáni
Vegvísir
Fréttaskot
Smáauglýsingar
Myntbreytir
Myndagallerý
Vefmyndavélar
Gera að upphafssíðu
FYRIRSPURNIR
-
Innskrá/Netklúbbur

Notandi

Lykilorð

Muna eftir mér
Fá sent lykilorð
Ekki með aðgang? Stofna aðgang
Skoðanakönnun

Hvaða væntingar berðu til beins flugs til Alicante sumarið 2011 ?
  
Viðburðardagatal

September 2010
S M Þ M F F L
2930311 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 1 2
Reykjavík 
Click for Reykjavik, Iceland Forecast

Alicante

Click for Alicante, Spain Forecast
 

Gífurlegar rigningar - blautt framundan - Fréttatilkynning 28.09.2009

Gífurlegar rigningar hafa verið í dag og síðustu daga á Costa Blanca ströndinni og er útlit fyrir að næstu dagar verði mjög blautir. Þrumur og eldingar hafa verið á öllu svæðinu og hafa himnarnir víða opnast og rignt það mikið að hægst hefur á allri umferð og flætt inn í hús og hýbýli fólks. Veðurspáin gerir ráð fyrir 60-90% líkum á rigningu næstu 3 daga og að það verði ekki fyrr en um miðja viku sem lægir á rigningunni og að það verður léttskýjað á ný. Eigendur fasteigna eru hvattir til að láta líta eftir eignum sínum því mikil hætta getur verið á vatnsskemmdum í úrhelli sem þessu. Myndir hér til hliðar sýnir aðkomuna að La Zenia ströndinni í morgunnn.  

Á að banna vændi á Spáni eða lögleiða ? - Fréttatilkynning 26.09.2009

Margir Íslendingar sem koma til Spánar hafa verið mjög hissa á því hve vændi er sýnilegt á götum úti en  víða á Costa Blanca ströndinni má sjá vændiskonurbjóða fram þjónustu sýni við hringtorg og þjóðvegi. Í tilefni að ítarlegri fréttaskýringu dagblaðsins "El País" á vændi og umfangi vændis á götum úti í Barcelona hafa farið af stað miklar rökræður um það hvort banna eigi vændi á Spáni eða lögleiða það fyrir fullt og allt. Það að stunda vændi og selja líkkama sinn fyrir greiðslu er ekki ólöglegt á Spáni en um leið og þriðji aðili fer að hagnast á sölu vændis sem milligönguaðili er vændið orðið ólöglegt. Í rökræðum um þetta efni síðustu daga hafa komið fram eftirtektarverðar upplýsingar eins og fjórði hver spænskur karlmaður hefur greitt fyrir kynlíf og að áætlað er að aðeins um 2-10% af um 300.000 vændiskonum á Spáni eru spænskar. Þeir sem vilja lögleiða vændið benda á að þessa elsta atvinnugrein í heimi sé að velta um 18 milljörðum evra á hverju ári eða um 3.300 íslenska milljarða og því sé eftir miklu að slægja fyrir spænsk skattayfirvöld ef þessi atvinnugrein verður lögleyfð og skattlögð.

Ryanair leyfir "reykingar" um borð - Fréttatilkynning 25.09.2009

Íslenskir flugfarþegar á leiðinni til eða frá Spáni geta nú flogið með Ryanair í gegnum London þar sem boðið verður upp reyklausar sígarettur fyrir reykingafólk. Þessar sígarettur gefa ekki frá sér neina lykt eða reyk en reykingamaðurinn fær sinn níkótínskammt án þess að þurfa að brjóta neinar reglur. Forsvarsmenn Ryanair ákváðu að taka þessar sígarrettur í sölu í flugflota sínum eftir að könnun á meðal viðskiptavina sýndi að um 24.000 flugfarþegar svöruðu því til að þeir hefðu mikla löngun í sígarettu meðan á flugi stæði. Sígarettupakkinn með 10 stk mun kosta í flugvélum Ryanair 6 evrur.

Nýr golfvöllur og nýtt klúbbhús - Fréttatilkynning 23.09.2009

Í miðri niðursveiflunni í heiminum opnar nú á sunnudaginn nýr golfvöllur - Vistabella golf - sem er staðsettur rétt norðan við spænska bæinn San Miguel de Salinas sem Íslendingar ættu að þekkja. Í fyrstu verða aðeins 11 holur opnar en unnið verður að því að gera hann að 18 holu velli. Þess má einnig geta að núna í sumar opnaði Las Ramblas golfvöllurinn nýtt og stórglæsilegt klúbbhús sem hefur verið í byggingu undanfarin ár og voru margir orðnir langþreyttir eftir biðinni. Í klúbbhúsinu er veitingastaður - kaffihús - golfbúð - búningsklefar fyrir golfara og veislusalur til útleigu. 

Strendur Torrevieja þær best vöktuðu - Fréttatilkynning 21.09.2009

Yfirvöld á Spáni hafa gefið út að þær strendur sem séu innan bæjarmarka Torrevieja séu í fyrsta sæti yfir þær strendur á Spáni þar sem mest eftirlit er haft með strandgestum. Yfirvöld í Torrevieja hafa 82 strandverði í sinni þjónustu og eyða um tæpum 800.000 evrur frá og með apríl til októberloka á hverju ári í þessa þjónustu fyrir strandgesti. Rauði Krossinn á svæðinu sem gerir út þessa strandverði hafa tilkynnt að um 9000 tilvikum hefur verið sinnt í ár eða allt frá minniháttar slysum og sólbruna upp í hjartaáföll og drukknun.

 

Flestir kunna eitthvað í spænsku - Jólin í ár ? - Fréttatilkynning 20.09.2009

Það er ljóst að mikill meirihluti Íslendinga sem hafa annan fótinn á Spáni og dvelja þar annað hvort langdvölum eða skamman tíma í senn geta bjargað sér í spænskunni. Í síðustu skoðannakönnun hér á síðunni voru hátt í 300 manns sem tóku þátt og um 46,5% aðspurðra sögðust kunna einstök orð eða orðatiltæki í spænskunni. Um 23,5% sögðust alveg geta bjargað sér en um 24,5% sögðust ekki kunna neitt en vilja læra málið. Fróðlegt var að aðeins 4% aðspurðra var altalandi á spænsku. Í nýrri könnun ætlum við að kanna hvar heimasíðugestir ætla að eyða jólunum og áramótunum í ár. Vinsamlegast takið þátt hér að neðan til vinstri.

Breytingar í CAM bankanum - Fréttatilkynning 19.09.2009

Frá og með 16. október næstkomandi koma til framkvæmda verulegar breytingar á útibúaneti CAM sparisjóðsins á Orihuela Costa svæðinu. Þrjú útibú bankans munu sameinast undir eitt þak en nánar tiltekið mun útibúið í La Zenia (útibú 0527) og útibúið í La Mosca verslunarkjarnanum (útibú 0514) loka og sameinast útibúinu í Playa Flamenca (útibú 0419) Samfara þessari sameiningu mun verða hagræðing og tilflutningur á starfsfólki útibúanna. Mjög margir Íslendingar eru með sín bankaviðskipti í Playa Flamenca útibúinu (útibú 0419) þar sem íslenskur útibússtjóri, Hrafnhildur Ósk Eiriksdóttir, hefur starfað við góðan orðstýr í mörg ár. Útibú Hrafnhildar mun skipta um húsnæði og mun Hrafnhildur og allt hennar starfsfólk því færa sig um set um nokkuð hundruð metra og fara yfir í verslunarkjarnann La Mosca. Þetta er verslunarkjarninn í Playa Flamenca alveg niður við N-332 þjóðveginn og við hliðina á Supercor matvörubúðinni og Burger King (sjá mynd). Hrafnhildur tekur við stöðu aðstoðarútibússtjóra í þessu stóra og mikla sameinaða útibúi og mun Hrafnhildur og hennar starfsfólk sem fyrr veita Íslendingum góða og persónulega þjónustu en allir viðskiptavinir útibús hennar munu halda sínum útibúa- og bankareikningsnúmerum. Þeir sem eru með reikninga hins vegar í hinum tveimur útibúunum (0514 og 0527) munu flytjast því yfir í útibú Hrafnhildar og fá þar ný reikningsnúmer.  

Sala fasteigna á Spáni minnkar á milli ára - Fréttatilkynning 17.09.2009

Í síðustu viku birtust opinberar tölur þess efnis að sala á fasteignum á Spáni hefur dregist saman um 33,9% á milli annars fjórðungs fjórðungs þessa árs og annars fjórðungs síðasta árs. Þó hefur verulega dregið úr þessari minnkun á sölu eigna þar sem samdrátturinn á milli fyrsta og annars fjórðungs þessa árs var aðeins um 8,45% og munurinn á milli síðasta fjórðungs síðasta árs og fyrsta fjórðungs þessa árs var aðeins um 2,75%. Einnig kemur í ljós þegar rýnt er í þessar tölur að meðal greiðslubyrði á fasteignalánum hefur á 6 mánaða tímabili á þessu ári lækkað úr 740 evrur á mánuði niður í 689,60 evrur á mánuði en slík lækkun stafar af verulegri vaxtalækkun sem hefur átt sér stað á síðustu mánuðum.

Skólarnir byrja í dag - Fréttatilkynning 14.09.2009

Þá er um 11 vikna sumarfríi lokið hjá nemendum og kennurum í spænskum skólum en flestir skólar á Spáni byrjuðu vetrarstarfið í morgunn. Nýir nemendur gætu þó þurft að byrja um viku seinna þar sem sá háttur er stundum hafður á að fyrsta skólavikan er notuð til að sjá hversu mikið af eldri nemendunum komi til baka eftir sumarfrí. Nokkuð er um að erlend börn tilkynni ekki brottflutning frá Spáni og því þurfa skólarnir að átta sig á heildarfjölda og samsetningu bekkja á fyrstu vikunni. Samkvæmt nýlegri könnun sem var gerð af tilefni af skólabyrjun geta foreldrar vænst þess að þurfa að greiða að meðaltali um 300 evrur í bókakostnað fyrir hvern nemanda en víða greiða þó bæjarfélög þennan kostnað niður með um helmingsframlagi

Vikulegt beint flug til Alicante - Fréttatilkynning 12.02.2009

Nú er ljóst að frá og með 22.október næstkomandi dettur beina flugið á milli Keflavíkur og Alicante niður í flug einu sinni í viku. Flogið verður alla laugardaga fram til 28. nóvember næstkomandi en í desembermánuði verður beint flug þann 17. des - 28. des og 5. jan. 2010. Flogið verður frá Keflavík kl 13:55 og lent í Alicante kl 19:30 á staðartíma. Heimflugið til Íslands er síðan kl 20:20 og lent í Keflavík kl 23:55 að staðartíma. Ódýrustu farmiðarnir á bókunarvefum ferðaskrifstofanna eru frá kr. 37.990. Hér er komið kærkomið tækifæri fyrir Íslendinga að skella sér í vikufrí til Spánar og fá smá yl í kroppinn. Einnig viljum við benda á að unnt er að leigja mjög góðar eignir í gegnum leiguvef Costablanca.is á hlægilegu verði eða frá kr. 22.000 vikan.

<< Byrjun < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Nsta > Endir >>

 
Modemnet
Mangóbar
Logobíll
Smáauglýsingar
Ljósmyndun
RÚV á Spáni
NIE númer
Caruso á Spáni