Við erum á Facebook      
Leiguíbúðir Bílaleiga Golf Fasteignaleit Spjall
06.jpg
Forsíða
Heimasíðan
Svæðið/Borgir
Bílar og samgöngur
Menning og hefðir
Flug
Gisting
Afþreying
Viðburðir
Fasteignahornið
Lögfræðihornið
Þjónustuhornið
Gott að vita
Búseta á Spáni
Vegvísir
Fréttaskot
Smáauglýsingar
Myntbreytir
Myndagallerý
Vefmyndavélar
Gera að upphafssíðu
FYRIRSPURNIR
-
Innskrá/Netklúbbur

Notandi

Lykilorð

Muna eftir mér
Fá sent lykilorð
Ekki með aðgang? Stofna aðgang
Skoðanakönnun

Hvaða væntingar berðu til beins flugs til Alicante sumarið 2011 ?
  
Viðburðardagatal

September 2010
S M Þ M F F L
2930311 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 1 2
Reykjavík 
Click for Reykjavik, Iceland Forecast

Alicante

Click for Alicante, Spain Forecast
 

Spánverjum fjölgar - Fréttatilkynning 07.07.2009

Nýverið birtust hagtölur frá Hagstofu Spánar þar sem kemur fram að Spánverjum hefur fjölgað um 500.000 á milli ára og er íbúatalan komin upp í 46.661.950 eða tæpa 47 millj. Einnig kemur fram að um 12% íbúa eru af erlendum uppruna og því ljóst að um 5,6 millj. útlendingar hafa fasta búsetu á Spáni og njóta réttinda og bera skyldur sem heimamenn. Kynjamunurinn er mjög svipaður en 49.5% íbúanna eru karlmenn en 50,5% kvenmenn. Aldurssamsetningin er eftirfarandi: 15,5%  íbúa eru undir 16 ára - 43,3% eru á aldrinum 16 - 44 ára og 41,2% íbúa eru 45 ára eða eldri.

5 nátta haustferð - Fréttatilkynning 06.07.2009

MADRID, OURENSE, RIAS BAJAS, SANTIAGO de COMPOSTELA 
6 dagar - 5 nætur.
Innifalið í verði er gisting á góðum hótelum með hálfu fæði, rúta og leiðsögn. 
Dagur 1 
Eftir að allir eru komnir í rútuna (nánari tímasetning síðar) höldum við sem leið liggur til Madrid þar sem gist verður á Hótel Puerta de Toledo, frjáls tími í borginni, kvöldverður.
Við leggjum í hann eftir morgunverð og förum sem leið liggur í gegn um Castilla y León til Ourense í Galicíu héraði. Komum okkur fyrir á Hótel San Martin sem er í miðborginni. Seinnipartinn skoðum við elsta hluta borgarinnar, kvöldverður.

Dagur 3 
Eftir morgunverð höldum við til Rias Bajas sem er strandlengja héraðsins, þar heimsækjum við nokkra af fjöldamörgum smábæjum við ströndina, þar gefst okkur kostur á að smakka úrval af skelfiski og sjávarréttum sem Galiciu-hérað er þekkt fyrir, seinnipartinn höldum við á hótelið okkar í Ourense, sameiginlegur kvöldverður.
Dagur 4 
Að morgunverði loknum brunum við til hinnar frægu borgar Santiago de Compostela, sem kennd er við heilagan Jakob og er endastöð á þekktustu pílagrímaleið Evrópu, El Camino de Santiago. Jakobsvegurinn hefur verið í notkun í meira en þúsund ár og var ein megin pílagrímaleið kristinna manna á miðöldum. Við notum daginn til að skoða okkur vel um í borginni og höldum svo aftur á hótelið okkar í Ourense. Sameiginlegur kvöldverður.
Dagur 5 
Nú höldum við að morgunverði loknum áleiðis heim með viðkomu í Madrid og gistum á sama hóteli og fyrsta daginn, frjáls tími í Madrid. Sameiginlegur kvöldverður.
Dagur 6 
Heimferðardagur, að loknum morgunverði höldum við sem leið liggur heim með góðum stoppum eins og vera ber.
Verð á mann í tvíbýli er 565,-€ Verð á mann í einbýli 685,-€ 

vegna staðfestingar á hótelum. Við bókun skal greiða 50% staðfestingargjald. Pantið hjá Ágústu Pálsdóttur í síma (0034) 608 966 327 eða agustapals@gmail.com 
Lengri opnunartími matvöruverslana - Fréttatilkynning 05.07.2009

Nú yfir hásumarið eða í júlí og ágúst munu helstu verslunarkeðjur á Costa Blanca ströndinni lengja opnunartími sinn. Sem dæmi má nefna að allar helstu verslanir eru nú með opið á sunnudögum til kl 16:00 eða 18:00 eftir verslunum. Þó slær enginn verslunarkeðjunni Carrefour við þar sem opnunartími þeirra er alla daga vikunnar frá kl 09:00 til kl 00:00 þannig að flugfarþegar frá Íslandi geta farið beint í Carrefour og verslað í ísskápinn áður en haldið er í sumarhúsið.

TE & KAFFI í ALicante - Fréttatilkynning 04.07.2009

Það er alltaf ánægjulegt að sjá dugnaðinn í okkur Íslendingum en nokkuð hefur verið um það að undanförnu að Íslendingar hafa verið að söðla um í ljósi aðstæðna á Íslandi og flytjast búferlum til Spánar. Á síðustu mánuðum hafa ýmsir staðir verið að opna í eigu Íslendinga en þar má nefna veitingastaðina Kristal og Caruso, barinn Boomerang og ekki má gleyma kaffihúsinu Te & Kaffi sem er staðsett í Alicante borg. Kaffihúsið er rekið af Kára Óskari Sverrissyni og Guðrúnu Þorgrímsdóttur sem eiga hlut í rekstrinum á móti Te & Kaffi. Hugmyndin kviknaði fyrir tveimur árum þegar Kári og Guðrún, sem eru mikið kaffidrykkjufólk, fóru í frí til Spánar og fundu hvergi gott kaffi. Í framhaldi af því höfðu þau samband við Te & Kaffi með samstarf í huga. Þau fundu húsnæði við aðalverslunargötuna og til að halda íslenskri tengingu fengu þau íslenskan hönnuð, Hildi Ísdal Þorgeirsdóttur, til að hanna staðinn og þykir sú hönnun hafa heppnast mjög vel. Kaffihúsið er með hefðbundinn matseðil þar sem hægt er að fá gómsætan mat; samlokur, panini, salöt og sushi að ógleymdum gómsætum tapasréttum. Nýjungar á borð við frappuccino og kaffi í götumálum eru ennfremur á boðstólum. Fyrir kaffiþyrsta Íslendinga á leið til Alicante þá er heimilisfang kaffihússins Calle Portugal 31, 03003 Alicante. Til upplýsingar fyrir þá sem þekkja til á svæðinu þá er kaffihúsið mjög nálægt El Corte Inglés verslunarmiðstöðinni og járnbrautarstöðinni sem eru mjög miðsvæðis í borginni.Þess má að lokum geta að kaffihúsið hefur fengið mjög jákvæða umsögn hjá helstu gagnrýnendum og ljóst að kaffihúsið hefur slegið í gegn.

Loksins loksins er framkvæmdum lokið - Fréttatilkynnning 02.07.2009

Það hefur ekki farið fram hjá Íslendingum á Torreviejasvæðinu að miklar framkvæmdir hafa staðið yfir á gamla þjóðveginum N-332 sem liggur meðfram allri Costa Blanca ströndinni. Unnið hefur verið að því undanfarin misseri að breikka veginn þannig að tvær akreinar séu í báðar áttir og hefur þetta þýtt að víða hefur þurft að breikka allar brýr og koma fyrir nýjum göngubrúm. Í dag lauk formlega famkvæmdum á Orihuela Costa svæðinu þar sem vegurinn liggur frá Torrevieja í gegnum Punta Prima - Playa Flamenca - La Zenia og Cabo Roig hverfin. Búið er að opna fyrir alla umferð og er umferðin orðin mun greiðvirkari til og frá Torrevieja og allir umferðarhnútar eru liðin tíð.

Karlmaður lést á Playa Flamenca ströndinni - Fréttatilkynning 30.06.2009

Karlmaður lést á Playa Flamenca ströndinni þegar hann var að baða sig í sjónum en strandverðir reyndu að koma manninum til hjálpar eftir að hann hné niður í sjónum. Ekki var mikill öldugangur eða hætta á ferðum í sjónum þar sem flaggað var grænu flaggi. Strandverðirnir reyndu lífgunartilraunir í 15 mín en án tilætlaðs árangurs. Að gefnu tilefni viljum við hvetja alla Íslendinga sem hyggja á strandferðir núna í sumar að fylgjast vel með litnum á fánum sem flaggað er hjá strandvörðunum þar sem stundum getur verið mikil hætta á ferðum vegna strauma í sjónum. Allt of mikið var um sorgleg dauðsföll í fyrrasumar þegar fólk fór í sjóinn vegna óhagstæðra strauma þrátt fyrir viðvaranir strandvarða en gott er að hafa það sem fasta reglu að fara ekki langt í sjóinn ef flaggað er rauðum fána.

Mikið markaðsátak í Rússlandi - Fréttatilkynning 28.06.2009

Síðustu daga hefur staðið yfir mikið markaðsátak í Rússlandi þar sem lagt hefur verið upp fyrir rússneska ferðalanga hve ákjósanlegur staður Costa Blanca svæðið er heim að sækja. Stór og mikil sendinefnd frá Valencia sýslu með m.a. borgarstjórum Alicante og Valencia borgar með í för, hefur verið í Rússlandi síðustu daga. Búið er að undirrita marga samstarfssamninga við margar aðila í ferðaþjónustugeiranum í Rússlandi og eru miklar vonir bundnar við þetta samstarf. Þess má geta að skv. nýlegri könnun eru 93% þeirra rússa sem koma til Spánar eingöngu þangað komnir til að sækjast eftir sól og góðum ströndum.

Veitingastaðir og barir kvarta ekki - Fréttatilkynning 26.06.2009

Þrátt fyrir mikinn samdrátt ferðamanna á Costa Blanca ströndina, sbr frétt hér á síðunni í gær, hafa veitingastaða- og bareigendur á nokkrum stöðum ekki sömu söguna að segja. Í Alicante borg og í Elche hefur verið aukin velta hjá þessum aðilum upp á síðkastið eftir erfiðan vetur og margir vilja meina að þeir séu að fá svipað í kassann hjá sér og á sama tíma í fyrra. Sérfræðingar vilja meina að gífurleg lækkun greiðslubyrði fasteignalána vegna lágra vaxta að undanförnu valdi því að fólk leyfir sér frekar að fara út að borða og vera meðal fólks og áður og einnig að spánverjar ferðast líka meira innanlands og sæki því strandsvæðin heim í sínum helgar -og sumarfríum.

Gífurleg fækkun ferðamanna - Fréttatilkynning 25.06.2009

Í vikunni birti Hagstofa Spánar nýjustu tölur varðandi fjölda ferðamanna til Spánar og skiptingu þeirra eftir sýslum og héruðum á Spáni. Á landsvísu fækkaði ferðamönnum til Spánar um 12% eða um 18,3 milljónir á fyrstu 5 mánuðum þessa árs í samanburði við fyrstu 5 mánuðí síðasta árs. Þegar tölurnar eru skoðaðar nánar eftir svæðum kemur í ljós að fækkun ferðamanna til Valencia sýslu er um 1,7 milljónir manna eða fækkun um 19% miðað við sama tíma í fyrra. Þegar rýnt er betur í þessar tölur kemur í ljós að um 71% þeirra ferðamanna sem komu til Spánar á síðustu 5 mánuðum komu á eigin vegum en ekki í pakkaferðum á vegum ferðaskrifstofa. Þetta er greinilega staðfesting á því að ferðamaðurinn í dag velur ódýrasta kostinn í fríinu og ferðast á eigin vegum og skipuleggur sumarfríið sitt alveg sjálfur.

Lengra sumarfrí í skólum Spánar - Fréttatilkynning 24.06.2006

Allir skólar Spánar eru þessa daganna að detta í sumarfrí en segja má að formlega ljúki skólaárinu í næstu viku. Það er því mikil tilhökkun hjá nemendum í spænskum skólum að komast í langþráð sumarfrí. Í síðustu viku gáfu spænsk skólayfirvöld út dagsetningar fyrir skólaárið 2009/2010 og þar kemur fram að skólar landsins hefjast á tímabilinu 14 - 16. september næstkomandi og ljúki síðan á tímabílinu 23 - 25. júní 2010. Jólafrí hefur verið ákveðið á tímabilinu 23. desember til 6. janúar 2010 og páskafrí á tímabilinu 29. mars til 5. apríl 2010. Einnig eru opinberir frídagar í skólum landsins þann 12. oktober - 7.og 8. desember - 19.mars - 1.maí og 9. júní en aðeins þó í Murcia sýslu. Skólar landsins hafa síðan úr að velja 3 daga á skólaárinu í kennslu- og námskeiðahald fyrir kennara landsins sem verða þá frídagar fyrir nemendurna.

<< Byrjun < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Nsta > Endir >>

 
Modemnet
Mangóbar
Logobíll
Smáauglýsingar
Ljósmyndun
RÚV á Spáni
NIE númer
Caruso á Spáni