|
Enn fleiri verkföll framundan - Fréttatilkynning 21.06.2010 |
|
Skammt er síðan opinberir starfsmenn á Spáni fóru í verkfall í einn dag til að mótmæla niðurskurði í ríkisfjármálum og nú virðast fleiri starfstéttir fylgja í kjölfarið. Gefið hefur verið út að starfsfólk í öllum apótekum í Valencia sýslu ætlar að leggja niður störf þriðjudaginn 29. júní næstkomandi. Við viljum hvetja alla Íslendinga á Costa Blanca ströndinni að hafa þetta í huga. |
|
|
Til hamingju með daginn - Fréttatilkynning 17.06.2010 |
|
Í dag er þjóðhátíðardagur Íslendinga og verður mikil þjóðhátíð haldin á Veitingastaðnum Caruso í Torrevieja bæði í dag og í kvöld. Nánari dagskrá má sjá með því að smella á íslenska fánan hér til hliðar á síðunni. |
|
|
HM-fjörið byrjar í dag og tónleikaröð með Eyfa framundan 11.06.2010 |
|
Heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu byrjar í dag í Suður Afríku en mikil fótboltaveisla er framundan fyrir knattspyrnuáhugamenn og ljóst að bekkirnir á pöbbunum á Spáni verða þéttsettnir næstu mánuðinn. Gaman er frá því að segja að fólk á Costa Blanca svæðinu hefur verið að flagga fánum síns lands á húsum sínum og því ljóst að stemmningin verður góð í sumum húsag örðum þar sem fólk af ýmsum þjóðerni býr. Af þessi tilefni viljum við benda Íslendingum á HM-horn þeirra á Caruso veitingastaðum á Spáni en þeir hafa sett upp góða útiaðstöðu með útibar í garðinum. Það getur líka verið erfitt að hafa yfirsýn yfir alla þá leiki sem eru framundan og því bendum við hér á frábært yfirlit um alla leiki og tímasetningar. Að lokum viljum við benda á að Eyjólfur Kristjánsson er kominn til Spánar og mun spila fyrir matargesti á Caruso á kvöldin frá kl. 20:30 til 22:00 eftirtalda daga: Í kvöld, annað kvöld 12. júní og síðan 16. 17. 18. og 19. júní næstkomandi. |
|
|
Er verkfallahrina framundan á Spáni ? Fréttatilkynning 08.06.2010 |
|
Í dag skall á allsherjarverkdall á Spáni hjá opinberum starfsmönnum til að mótmæla áformum stjórnvalda um mikinn niðurskurð á ríkisfjárlögum. Meðal aðgerða stjórnvalda er 5% launlækkun hjá öllum opinberum starfsmönnum landsins en alls vinna 2,5 milljón manna hjá hinu opinbera á Spáni. Verkfallið nær til starfsfólks skóla, spítala og slökkviliðs svo og hjá opinberum starfsmönnum stofnanna. Íslenskir skólakrakkar á Spáni mættu til að mynda ekki í skólann í morgunn vegna þessa verkfalls en samtök opinberra launþega boða frekari verkföll. |
|
|
Haldið upp á íslenska sjómannadaginn á Spáni í fyrsta skipti - Fréttatilkynning 02.10.2010 |
|
Næstkomandi sunnudag, 6. júní 2010, munu Íslendingar á Spáni halda upp á hinn íslenska sjómannadag í fyrsta skipti á Spáni. Íslendingar á Costa Blanca ströndinni munu hittast á Íslendingabarnum Bommerang í Playa Flamenca (Centro comercial Flamenca beach) kl 14:00 á sunnudaginn og gera sér glaðan dag. Aldraðir sjómenn verða heiðraðir - keppt í reipitog - besti boxarinn valinn - aflakongurinn valinn og farið í eggjahlaup. Þá verður boðið upp á spænska paellu og brauð fyrir aðeins 3 evrur fyrir þá sem það vilja. Gaman væri að sjá sem flesta þar sem verið er að halda upp á daginn i fyrsta skiptið á Spán. Með fyrirfram þökk og með sjómannakveðju. Fh. Boomerang - Ómar sími 605-298101 |
|
|
FC Cartagena er að komast í efstu deild - Fréttatilkynning 30.05.2010 |
|
Meistaraflokkur Cartagena liðsins í fótbolta hefur standið sig ótrúlega vel í spænsku 2.deildinni í allan vetur og nú þegar aðeins 3 leikir eru eftir af núverandi leiktíð er liðið FC Cartagena í 3ja sæti deildarinnar fyrir neðan Real Sociedad og Levante en Real Betis fylgir strax í kjölfarið í 4. sæti. Það eru 3 lið sem komast úr 2. deildinni og upp í deild þeirra bestu - La Liga - þar sem þeir bestu spila. Það væri því óskandi að þetta gangi allt eftir að FC Cartagena komist upp þar sem það verður ekki slæmt fyrir Íslendinga að skella sér í 30 min akstur til Cartagena og komast á leik með stórliðum eins og Real Madrid og Barcelona. Það sem kannski ekki margir Íslendingar vita þá er eigandi FC Cartaena liðins, Paco Gomez, sem er mikill vinur okkar hjá Costablanca.is en hann bauð til að mynda um 50 íslendingum á vínbúgarð sinn árið 2007. Sjá má myndir hér. Eftir þessa vínsmökkunarferð sendi hann heilt bretti af léttvíni til Íslands og hefur hann einnig lengi viljað heimsækja Ísland. Við óskum þess innilega að langþráður draumur vina okkar í FC Cartagena rætist og að þeir spili í efstu deild á næsta leikári. Þess má og að lokum geta að liðið hefur engan alvöruheimavöll en Paco Gomez gaf út þá yfirlýsingu í upphafi þessa tímabils að ef FC Cartagena liðið kæmist upp að þá myndi hann lofa liðinu og áhengendum þess nýjan og veglegan heimavöll. Síðustu fréttir herma að allur undirbúningur er farinn af stað enda svo sem hæg heimatökin fyrir Gomez en hann er eigandi að einu stærsta byggingarverktakafyrirtæki Spánar. |
|
|
Er kreppan að ganga frá Spánverjum ? - Fréttatilkynning 30.05.2010 |
|
Efnahagsástandið á Spáni hefur þónokkuð verið í heimsfréttum í liðinni viku en spænsk stjórnvöld reyna nú að öllum krrafti að koma spænsku þjóðarskútinni úr þeim ólgusjó slælegs efnahagsástands sem hrjá mörg lönd í suður - evrópu. Spænska þingið samþykkti naumlega eða með aðeins með 1 atkvæði að skera niður þjóðarútgjöld um 2.400 milljarða ísl kr. en með því vill spænska ríkið rétta af fjárlagahallann um 5% af vergri þjóðarfrmaleiðslu á einu ári og einnig vill spænska ríkisstjórnin með þessari aðgerð koma í veg fyrir að svipað neyðarástand skapist á Spáni og í Grikklandi. Margir Spánnverjar óttast mjög hvaða afleiðingar þetta muni hafa á spænska hagkerfið en atvinnuleysið mælist nú um rúm 20% sem er tvöfalt meira en meðaltal evruþjóða. Í lok vikunnar komu síðan ekki góðar fréttir þegar alþjóðalega matsfyrirtækið Fitch lækkaði lánshæfismat spænska ríkisins um einn flokk eða úr AAA í AA+. Í kjölfar þessara fréttar lækkuðu hlutabréf víða í kauphöllum og gengi evrunnar lækkaði gagnvart Bandaríkjadal. Fitsch segist hafa lækkað lánshæfismat spænska ríkisins þar sem sparnaðaraðgerðir ríkisins muni draga úr möguleikum úr hagvexti á Spáni á næstum árum. |
|
|
Eurovision-party og eurovisionmatseðill - Fréttatilkynning 24.05.2010 |
|
Næstkomandi laugardag mun Hera okkar stíga á svið í Noregi með lagið sitt "je ne sais quoi" en bein útsending frá Eurovision hátiðinni hefst kl 21:00 að spænskum tíma. Veitingastaðurinn Caruso í Torrevieja og Costablanca.is hafa ákveðið að taka höndum saman og efna til mikillar hátíðar þetta kvöld en Ólafur Eyvinsson matreiðslumeistari Caruso hefur tekið saman eftirfarandi Eurovision matseðil fyrir kvöldið en borðhald hefst um kl 20:00.
Eurovision matseðillinn:
Fordrykkur - Kir Royal
Foréttur - Blandaður spænskur forréttur
Aðalréttur - Entrecote "Bearnis" eða Ofnbakur lax með piparrótarsósu
Eftirréttur - Whisky terta með ensku kremi.
Verð 19,90 evrur.

Koma svo Íslendingar ! - allir komi nú saman og hafi gaman saman Eurovision kvöldið 29. maí 2010.
Þeir sem vita ekki heimilisfangið á Caruso þá má sjá staðsetnignuna hér.
|
|
|
Eurovision - Sjómannadagurinn - 17.júní - Fréttatilkynning 23.05.2010 |
|
Þar sem styttist óðum í Evróvison keppnina, 29. maí næstkomandi og hafa eigendur Boomerang bar ákveðið að efna til Eurovison hátíðar þá um kvöldið. Boomerang er í kjarnanum í Playa Flamenca og í eigu Íslendinga. Ennfremur á að halda uppá sjómannadaginn 6. júní nk og síðan þjóðhátíðardaginn 17. júní. Ómar vert á Boomberang segist ætla að standa svipað að þessu nú og áður og bjóða öllum uppá grillmat og tilheyrandi og fagna 66 ára afmæli lýðveldsins Íslands og ekki að óþörfu á þessum skrítnu tímum sem lýðveldið okkar er að ganga í gegnum. |
|
|
Myndir af "Icelandic Open" golfmótinu 2010 - Fréttatilkynning 19.05.2010 |
|
Eins og glöggir heimasíðugestir hafa tekið eftir þá stóðum við hjá Costablanca.is fyrir hinu árlega "Icelandic Open" goflmóti á Spáni núna í byrjun maí í samstarfi við Plúsferðir, CAM sparisjóðinn og veitingastaðinn Caruso á Spáni. Um var að ræða vikugolfferð þar blandað var saman golfi, 3ja daga golfmóti og skipulagða dagskrá á kvöldin þar sem selgið var á létta strengi. Undanfarna daga höfum við verið að safna að okkur myndum og höfum nú sett upp myndagallerý af mótinu sem unnt er að sjá með því að smella hér. Fleiri myndir koma inn á næstunni. Við þökkum öllum þátttakendum kærlega fyrir ánægjulegan tíma og sjáumst að ári. |
|
|
|
<< Byrjun < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Nsta > Endir >>
|