Við erum á Facebook      
Leiguíbúðir Bílaleiga Golf Fasteignaleit Spjall
03.jpg
Forsíða
Heimasíðan
Svæðið/Borgir
Bílar og samgöngur
Menning og hefðir
Flug
Gisting
Afþreying
Viðburðir
Fasteignahornið
Lögfræðihornið
Þjónustuhornið
Gott að vita
Búseta á Spáni
Vegvísir
Fréttaskot
Smáauglýsingar
Myntbreytir
Myndagallerý
Vefmyndavélar
Gera að upphafssíðu
FYRIRSPURNIR
-
Innskrá/Netklúbbur

Notandi

Lykilorð

Muna eftir mér
Fá sent lykilorð
Ekki með aðgang? Stofna aðgang
Skoðanakönnun

Hvaða væntingar berðu til beins flugs til Alicante sumarið 2011 ?
  
Viðburðardagatal

September 2010
S M Þ M F F L
2930311 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 1 2
Reykjavík 
Click for Reykjavik, Iceland Forecast

Alicante

Click for Alicante, Spain Forecast
 

Tilkyninngar frá spilaklúbbum Íslendinga - Fréttatilkynning 24.04.2010

Kæru félagar,
Síðasti bridge dagur verður núna næsta mánudag,26.04,
með tvímenningi og verða vegleg verðlaun í boði, viðbit verður með kaffinu að spilamensku lokinni.
Vonumst til sjá sem flesta.
KV. Stjórnin

Félagsvistin hættir.
N
ú er komið að leiðarlokum með félagsvistina í vetur.
Síðasta skiftið verður nk. miðvikudag, 28. apríl kl. 14 á sundlaugarbarnum eins og venjulega. Við þökkum öllum sem hafa tekið þátt kærlega fyrir samveruna, hittumst hress aftur í haust. Mini-golfið bæði í Quesada og á sundlaugarbarnum heldur hinsvegar áfram.
Gleðilegt sumar.
Umsjónarmenn

 

Skemmtileg og hagnýt sýning um helgina - Fréttatilkynning 23.04.2010

Í dag hófst sýningin "This is Spain Exhibtion" í Orihuela Resort garðinum í La Zenia hverfinu en sýningin mun standa standa yfir alla helgina frá kl 10:00 til 18:00 alla dagana. Fyrirtæki á Costa Blanca svæðinu munu kynna starfssemi og þjónustu sína eða allt sem snertir sumarhúsið á Spáni, tryggingar, bílar, heilsuvörur, símavörur, net-og breiðband og margt fleira. Einnig verður boðið upp á ýmiss skemmtiatriði fyrir alla fjölskylduna allan daginn. Hér er kærkomið tækifæri fyrir Íslendinga á svæðinu að hitta fyrir fyrirtæki og þjónustaaðila á Costa Blanca svæðinu á sama staðnum og sjá hvað fyrirtækin hafa upp á að bjóða. Unnt er að kíkja á heimasíðuna www.exhibitions-spain.com til að forvitnast frekar um þessa sýningu.

Íslensk messa næstkomandi sunnudag - Fréttatilkynning 21.04.2010

Sunnudaginn 25.apríl verður messa í norsku sjómannakirkjunni í Torrevieja.(c/Ravel 4, Urb. La Siesta.) Séra Ragnheiður Karítas Pétursdóttir þjónar fyrir altari og kórinn leiðir sálmasöng við undirspil Jukka Hovila. Börn búsett á Spáni fá litla gjöf frá kirkjunni. Messan hefst klukkan 11:00  Eftir messu verður hægt að kaupa kaffi og meðlæti í kaffiteríu kirkjunnar og eiga stund saman. Fyrirbænaefnum er hægt að koma til Ragnheiðar með tölvupósti: rkp@simnet.is  
Íslendingar eru hvattir til að koma í hús Drottins, til að syngja saman  og eiga samfélag í trú og gleði.
Guð gefi ykkur öllum góðar stundir,Ragnheiður Karítas Pétursdóttir

 

Kristinn R Ólafsson með fyrirlestur á sundlaugabarnum - Fréttatilkynning 20.04.2010

Kristinn R. Ólafsson, útvarpsmaður í Madríd, verður með fyrirlestur á sundlaugabarnum á Las Mimosas miðvikudaginn 5. maí klukkan frá kl. 17-19.  Spjallið ber yfirskriftina “Sagan lesin úr listinni”. Þar hyggst hann stikla á stóru í sögu Spánar út frá spænskum listaverkum en vera á léttu nótunum enda af mörgu skemmtilegu að taka. Nægir þar að nefna þau konunglegu hjú Jóhönnu brjáluðu og Filippus fagra. 
Gjaldið er 10 evrur en innifalið í því er ekki aðeins spjall Kristins R. heldur hálfflaska af víni hússins á mann ásamt  gómsætu snittusnarli. 
Þeir sem hafa áhuga á að hlusta á þennan þekkta og vinsæla útvarpsmann eru beðnir um að skrá sig í krolafsson@gmail.com eða hringja í Friðrik Salters í síma  670 717 575
Kristinn R. hafði þetta að segja um fyrirlesturinn:
Þetta er ekkert hástemmt heldur í léttum dúr en þó þannig að fólk fái svolitla innsýn inn í hina merku sögu Spánar. Ég nota sömu aðferð og ég hef haft á ýmsum fjölsóttum námskeiðum sem ég hef séð um í Reykjavík undanfarin ár: sýni myndir á skjá og kríta síðan í kringum þær blaðlaust.
Ég var síðast með tveggja kvölda námskeið um þetta efni hjá Endurmenntun Háskóla Íslands í haust leið. Það sóttu hátt í 80 manns. Þessu þjappa ég nú saman í eitt létt síðdegi en alls eru þetta um tveir tímar með um 15 mínútna hléi.  Mig hefur lengi langað að tala við Íslendinga á Spáni um þetta land sem ég hef búið í núna á fjórða tug ára, sent pistla frá í tæp 30 ár og sýnt samlöndum mínum ótal sinnum sem fararstjóri. Að skoða listaverk og spjalla í kringum þau um söguna er skemmtileg leið til þess.”

 

 

Íslensk tónleikaveisla í sumar á Caruso - Fréttatilkynning 18.04.2010

Eins og vikið var að í fréttatilkynningu hér á síðunni fyrr í vikunni þá hafa forsvarsmenn veitingastaðarins Caruso unnið ötullega að því í samstarfi við Costablanca.is að skipuleggja íslenskt tónlinstarsumar á Caruso í sumar. Okkur er ljúft að tilkynna það að stórnöfn eins og Jógvan og Vignir Snær munu halda tónleika fyrir matargesti daganna 2., 3. og 4. júlí næstkomandi en félagarnir munu koma með gítarinn og fiðluna og leika á alls oddi fyrir matargesti en Jógvan er með vinsælustu tónlistarmönnum Íslands í sumar og Vignir Snær hefur slegið víða í gegn en nefna má hljómsveitina Írafár sem er Íslendingum alkunn. Einnig mun fastagestur staðarins stórsöngvarinn Eyjólfur Kristjánsson spila á staðnum þann 11. og 12. júní og daganna 16., 17., 18., og 19. júní næstkomandi. Unnið er að því að flytja út fleiri íslenskar stórstjörnur til Spánar en frekari upplýsingar um slíkt verður gefið upp hér á síðunni um leið og slíkt liggur fyrir. Vissara er að gera borðapantanir snemma en reiknað er með að uppselt verið á þessa tónleika í sumar. Borðapantanir má gera í síma 0034-965706454    

Caruso býður upp á beinar útsendingar - Fréttatilkynning 17.04.2010

Starfsmenn veitingastaðarins Caruso í Torrevieja eru búnir að útbúa frábæra aðstöðu úti við þar sem unnt er að horfa á allar beinar útsendingar eins og frá enska boltanum og úr meistaradeildinni. Búið er að setja upp útibar og stóran sjónvarpsskjá og verður unnt að versla mat  af matseðli eins og pizzur og aðra rétti á meðan á leik stendur.  Næsti stórleikur í boltanum er leikur Inter Milan og Barcelona á þriðjudagskvöldið næstkomandi og hvetjum við alla Íslendinga til að mæta á svæðið og skapa fína stemmningu. Það er ljóst að það er mikil tillhlökkun til sumarsins en beinar útsendingar verða úr HM-horni Caruso manna á meðan á heimsmeistaramótinu stendur en HM í Afríku byrjar 11. júní næstkomandi.

Réttindi flugfarþega sem komast ekki leiðar sinnar - Fréttatilkynning 16.04.2010

Eins og kom fram í fréttatilkynningu fyrr í dag þá fékk flugvél Iceland Express ekki flugheimild frá Alicante til Íslands vegna öskufallsins frá Íslandi og og flugfarþegum var komið fyrir á hótelum. Vegna þessa ástands hefur Samönguráðuneytið á Íslandi gefið út eftirfarandi upplýsingar til íslenskra flugfarþega:
Flugfarþegar sem verða fyrir töfum og truflunum þegar flugferðum er aflýst eða seinkað vegna eldgoss eiga rétt á að fá greiddan aukakostnað sem af töfum hlýst, til dæmis vegna máltíða eða gistinga. Um réttindi flugfarþega er fjallað í reglugerð nr. 261/2004.
Reglugerðin fjallar um sameiginlegar reglur um skaðabætur og aðstoð vegna farþega sem neitað er um far, þegar flugi er aflýst eða mikil seinkun verður. Greint er á milli skaðabóta annars vegar og aðstoðar hins vegar og segir í 5. grein reglugerðarinnar að flugrekanda beri ekki skylda til að greiða skaðabætur ef hann getur fært sönnur á að flugi hafi verið aflýst af völdum óviðráðanlegra aðstæðna sem ekki hafi verið hægt að afstýra.
Ber að greiða kostnað
Flugrekendum ber hins vegar að greiða kostnað sem farþegar verða fyrir vegna tafa og óvæntrar gistingar þegar þeir geta ekki lokið ferð. Á þetta því til dæmis við um farþega sem staddir eru hérlendis og komast ekki á fyrirhuguðum ferðadegi tilbaka og þá sem staddir eru erlendis og komast ekki heim á réttum degi.
Í þessum tilvikum skal bjóða farþegum eftirfarandi endurgjaldslaust:
Máltíðir og hressing í samræmi við töfina, hótelgisting ef farþegi neyðist til að bíða eina eða fleiri nætur eftir fari og flutning milli flugvalla og gististaðar. Einnig skal bjóða farþegum að hringja eða senda skilaboð.
Ef farþegar fá ekki framangreinda þjónustu frá flugrekenda eða flytjanda og þurfa að greiða fyrir hana sjálfir þá skulu þeir taka kvittanir fyrir útlögðum kostnaði og krefja flugrekanda eða flytjanda um endurgreiðslu á þeim kostnaði
Óviðráðanlegar aðstæður fella því ekki niður rétt á þjónustu samkvæmt því sem að framan er talið og segir í 9. grein reglugerðarinnar

Við þetta er að bæta að í umræddri reglugerð segir í 13.gr að flugfarþegar eiga rétt á annað hvort endurgreiðslu eða flugleiðinni sé breytt. Þó segir síðan í 14.gr að skyldur flugrekenda geta fallið niður vegna óviðráanlegra aðstæðna og verður að telja að eldgosið og afleiðingar þess falli þar undir.

Að lokum hefur Iceland Express minnt á skilmála sína á heimasíðunni sinni og draga eftirfarandi atriði fram: 

Almennir skilmálar

  • Flug verður að vera flogið innan gildistíma flugmiðans og eða innan 3ja mánaða frá upphaflega fluginu eða hvort sem er lengra.
  • Farþegar með útgefna flugmiða fyrir tengiflug sem sérstaka flugmiða verða sjálfir að hafa samband við hlutaðeigandi flugfélög  einnig varðandi greiðslu á viðbótarkostnaði og breytingargjöldum.
  • Farþegar í pakkaferð verða að hafa samband við sinn söluaðila þar sem ekki er tryggt að sömu skilyrði eigi við. Athugið: að möguleg endurgreiðsla á aðeins við flughluta pakkans en ekki er um heildarendurgreiðslu að ræða né allan kostnað við ferðina.
  • Vinsamlegast hafið samband við farþegaþjónustu Iceland Express +354 5500600 ef einhverjar spurningar koma upp.
  • Farþegar í seinkuðum flugum vinsamlegast fylgist vel með upplýsingum á vef Iceland Express eða á Textavarpinu, áður en farið er útá flugvöll.

  • Iceland Express biðst afsökunar á þeim óþægindum og og þeirri óviðráðanlegu stöðu sem er komin upp

     

    Allt flug í Evrópu meira og minna lamað vegna gossins - Fréttatilkynning 16.04.2010

    Allt millilandaflug til og frá Norðurlöndunum og í Norður Evrópu liggur niðri frá því gær vegna eldgossins í Eyjafjallajökli og hafa níu lönd í Evrópu lokað lofthelgi sinni vegna öskufalls sem berst nú yfir Evrópu. Sambærileg víðtæk lokun á flugvöllum í Evrópu hefur ekki átt sér stað síðan í seinni heimstyrjöldinni og í gær var aflýst um 4.500 flugum. Vegna þessa hefur sjaldan verið eins lítið að gera á Alicante flugvelli en aðeins innanlandflugvélar flugu til og frá Alicante flugvelli í gær og í morgunn. Þó lenti flugvél frá Iceland Express eftir miðnætti frá Íslandi og var áætluð brottför með fjölda farþega til Íslands rétt fyrir 01:00 í nótt en þegar kom að lokaútkalli var fluginu aflýst og flugfarþegum komið fyrir á nærliggjandi hótelum. Það er ljóst að allt flug til og frá Íslandi til Alicante hefur riðlast verulega vegna eldgossins og fer það eftir veðri og vindum næstu daga hvernig gosaskan frá Íslandi dreifist. Flugfarþegar sem eru á leið til eða frá Spáni eru beðnir um að fylgjast vel með textavarpi og heimasíðum flugvallanna en með brottförum og komutimum á Keflavíkurflugvelli er unnt að fara inn á www.airport.is og inn á spænsku flugvallarsíðuna www.aena.es til að fylgjast með flugi til og frá Alicante flugvelli.    

    Spánarflugið getur raskast - Fréttatilkynning 14.04.2010

    Eins og alþjóð veit hófst eldgos undir Eyjafjallarjökli í morgunn og telja vísindamenn það vera 10 - 20 sinnum stærra en eldgosið á Fimmvörðuhálsi. Samkvæmt fréttum í morgunn er bannað að fljúga um stóran hlutan landins vegna hættu sem getur stafað af öskufalli. Að sögn vísindamanna eru likur á að öskufallið aukist þegar líður á gosið og því ljóst að það fer eftir vindátt næstu daga hvernig öskufallið dreifist en í morgunn leggur það í austurátt og mun flugleið Icelandair til Noregs breytast en ekki falla niður. Að sögn upplýsingarfulltrúa Flugstoða mun eldgosið hafa áhrif á millilandaflugið en flug til og frá Íslandi mun ekki liggja niðri eins og staðan er núna. Flugfarþegar eru því hvattir til að fylgjast vel með hvort flugáætlun til Alicante muni breytast vegna eldgossins. Unnt er fylgjast með öllu flugi á www.airport.is   

    Kóræfing - Fréttatilkynning 13.04.2010

    Kóræfing verður fyrir alla þá Íslendinga sem hafa áhuga í norsku sjómannakirkjunni í Torrevieja mánudaginn 19. apríl kl. 16:00. Æft verður fyrir messuna sem verður þann 25. apríl á sama stað. Enn er pláss í kórnum og eru allir velkomnir.  Upplýsingar veitir séra Ragnheiður Karítas Pétursdóttir í síma 669 151 237 eða rkp@simnet.is. rkp@simnet.is Fyrir þá sem ekki vita hvar norska kirkjan er staðsett þá er hún í La Siesta hverfinu sem er staðsett rétt fyrir ofan verslunarmiðstöðina Habaneras á leið upp til Dona Pepa og Queasada. Heimasíða kirkjunnar er http://www.sjomannskirken.no/torrevieja 

    << Byrjun < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Nsta > Endir >>

     
    Logobíll
    Smáauglýsingar
    NIE númer
    Ljósmyndun
    RÚV á Spáni
    Modemnet
    Caruso á Spáni
    Mangóbar