Við erum á Facebook      
Leiguíbúðir Bílaleiga Golf Fasteignaleit Spjall
10.jpg
Forsíða
Heimasíðan
Svæðið/Borgir
Bílar og samgöngur
Menning og hefðir
Flug
Gisting
Afþreying
Viðburðir
Fasteignahornið
Lögfræðihornið
Þjónustuhornið
Gott að vita
Búseta á Spáni
Vegvísir
Fréttaskot
Smáauglýsingar
Myntbreytir
Myndagallerý
Vefmyndavélar
Gera að upphafssíðu
FYRIRSPURNIR
-
Innskrá/Netklúbbur

Notandi

Lykilorð

Muna eftir mér
Fá sent lykilorð
Ekki með aðgang? Stofna aðgang
Skoðanakönnun

Hvaða væntingar berðu til beins flugs til Alicante sumarið 2011 ?
  
Viðburðardagatal

September 2010
S M Þ M F F L
2930311 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 1 2
Reykjavík 
Click for Reykjavik, Iceland Forecast

Alicante

Click for Alicante, Spain Forecast
 

Langþráð matvörubúð í Cabo Roig - Fréttatilkynning 12.03.2010

Margir Íslendingar eiga fasteignir í strandhverfinu Cabo Roig á Torreviejasvæðinu en svæðið hefur upp á margt að bjóða en allt er við hendina nema hvað áþreifanlega hefur vantað matvörubúð í hverfið. Nú verður breyting á og ættu allir að gleðjast yfir þessum fréttum þar sem hingað til hefur ekki verið unnt að ganga í alvörumatvörubúð nema þá í fokdýrar 24 búðir á svæðinu. Framkvæmdir eru hafnar á matvöruverslun á lóðinni við hliðina á "El Faro" húsinu og Trinity barnum en ekki er enn vitað hvaða matvörukeðja muni opna í þessu húsi. Að því sem við komumst næst er áætlað að búðið verði opnuð fyrir sumarvertíðina sem senn fer í hönd.  

Ekkert vandamál með vatnið lengur - í bili - Fréttatilkynning 07.03.2010

Undanfarin misseri hefur vatnsþurrð verið mikið vandamál á Costa Blanca svæðinu en komið hafa tímabil þar sem vatn til vökvunar í landbúnaði hefur klárast vegna langvarandi þurrka og uppskerur bænda hafa eyðilagst. Einnig hafa margir golfvellir lent illa í því þar sem nægjanlegt vatn hefur ekki verið staðar til að vökva vellina og grasið á sumum völlum hefur skemmst gífurlega vegna þurrka. Þetta verður ekki vandamálið á næstu misserum þar sem miklar rigningar í haust og vetur hafa gert það að verkum að öll uppistöðulón og önnur vatnsból eru yfirfull. Mælingar sýna svo ekki verði um villst að ekki hefur verið eins blautt í haust og vetur á Costa Blanca svæðinu í um 20 ár.    

Miklar verðlækkanir og mikið verðstríð - Fréttatilkynning 03.03.2010

Eins og flestum er kunnugt um er heimskreppan að leika Spánverjana grimmt og óhætt að segja að spænska efnahagskerfið sé að skrapa botninn þessa mánuðina. Birtingarmyndir kreppunnar eru ýmsar og óhætt að segja að hinn almenni neytandi njóti hags af henni sem stendur. Gífurlegar verðlækkanir hafa  átt sér stað og verðstríð er mikið. Nefna má sem dæmi að fasteignaverð hefur lækkað allt upp í 50% - bílverð upp í 40% - nótt á 5 stjörnuhótelið aðeins um 40 evrur - veitingastaðir með mikið af 2 fyrir 1 tilboðum - bíósalir bjóða upp á frítt poppkorn - leiga á DVD diskum aðeins 1 evra - og það sem er markverðast er að bensín og díselolía hefur lækkað en bensínlíterinn er rétt um 1 evru eða um 174 kr á meðan hann er á um 205 kr á Íslandi þrátt fyrir hátt gengi. Það er ljóst að neytendur geta gert mjög víða gífurlega góð kaup á Spáni.

Hálf maraþonhlaup í Torrevieja - Fréttatilkynning 27.12.2010

Á morgunn sunndag verður 27. hálf maraþonhlaupið haldið í Torrevieja borg en nú þegar hafa um 2000 hlaupara skráð sig til hlaups. Hlaupið er tvo stóra hringi umhverfis borgina en spáð er góðu hlaupaveðri. Við hvetjum alla Íslendinga að taka þátt en veitt verða vegleg verðlaun fyrir fyrstu sætin en verðlaunaféð fyrir 1. sætið er 7.550 euros og 1.000 evrur til viðbótar ef hraðametið verður slegið út en metið fyrir þessa 22 km er 1 klst - 8 mínútur og 58 sek. Þá er um að gera að fara pússa hlaupaskónna. 

Við spornum við háu bílaleiguverði - Fréttatilkynning 26.02.2010

Íslenskir ferðamenn fundu fyrir því svo ekki varð um villst hvað verð á bílaleigubílum á Spáni hækkaði gífurlega yfir sumarmánuðina í fyrra og nú er ljóst að það sama verður í sumar. Við hvetjum fólk til að bóka snemma þar sem bílaleiguverð getur hækkað enn meira en auglýst er nú á bókunarsíðum bílaleigufyrirtæki. Við viljum benda öllum Íslendingum á VERÐVERNDINA en með nýjum samningum við samstarfsbílaleigu okkar hér á Spáni til 4 ára ætla þeir að tryggja að þeir verði með lægstu verðin. Það eina sem fólk þarf að gera er að senda á leiga@costablanca.is sönnun þess að unnt sé að leigja bíl á lægra verði annars staðar miðað við það verð sem gefið er upp hér á síðunni og við bjóðum lægra verð.
Einnig segjum við þessu verðhækkunum stríð á hendur og kynnum nýja möguleika í bílaleigumálum sem við köllum BÍLALEIGUBÍLL Í EINKAEIGU. Þarna bjóðum við annars vegar bílaeigendum á Spáni að leigja bílana sína á Spáni í gegnum Costablanca.is og um leið bjóða íslenskum ferðalöngum að leigja ódýrari bíla en gengur og gerist. Sjá nánar með því að smella hér.  

Uppræta á götuvændi - Fréttatilkynning 22.02.2010

Það fer ekki fram hjá Íslendingum sem ferðast til Costa Blanca strandarinnar að götuvændi er mjög sýnilegt á svæðinu og sérstaklega á mörgum hringtorgum þegar fer að rökkva. Nú er ljóst að þessi iðja mun heyra fljótlega sögunni til en yfirvöld hafa samþykkt ný lög sem taka fljótlega gildi og hafa það eitt að markmiði að þurrka út götuvændi. Hver sú sem verður staðinn að því að bjóða sig til sölu á götum úti getur samkvæmt lögunum fengið 750 - 3000 evrur í sekt. 

Bridgefélag Íslendinga á Spáni stofnað - Fréttatilkynning 19.02.2010

Í gær var haldinn stofnfundur að bridgefélagi á sundlaugarbarnum í Las Mimosas. Mættu 27 manns og verður það að teljast frábært. Það á örugglega á eftir að fjölga með tímanum, en það er alltaf hægt að gerast stofnfélagi. Kosið var í stjórn og er Sverrir F. Kristinsson formaður. Á fundinum var ennfremur samþykkt að stofngjald yrði 12,00 evrur á mann og 20,00 evrur á hjón.
Næstkomandi mánudag, þ.e. 22. febrúar kl. 14:00 hefst svo sjálf spilamennskan með eins dags tvímenningi. Keppnisgjald er 2,50 evrur fyrir stofnfélaga, en 4,00 evrur fyrir aðra. Vonast er til að sem flestir mæti með bros á vör. Nánari upplýsingar veita eftirtaldir:

Sverrir F. Kristinsson í síma (0034) 966 199 280.
Haraldur Árnason í síma (0034) 661 827 899.

Kveðja, stjórnin.

Atriði sem þarf að huga að við búferlaflutninga - Fréttatilkynning 18.02.2010

Að gefnu tilefni viljum við koma því á framfæri við Íslendinga sem hafa búið á Spáni og eru að íhuga að flytja aftur til Íslands að huga vel að sjúkratryggingunum.  Framkvæmdin er þannig að þegar lögheimili er skráð aftur á Íslandi eftir búsetu erlendis þá tekur það viðkomandi 6 mánuði að komast aftur inn í íslenska sjúkra- og almannatryggingakerfi.  Það er ekki nóg að sýna spænska útgáfu af blá samevrópska sjúkratryggingarkortinu (E-111) heldur þarf viðkomandi að sækja um til spænskra yfirvalda um að þau muni ábyrgjast allar almenna- og sjúkratryggingar á næstu 6 mánuðum frá því lögheimili var skráð í Þjóðskránni á Íslandi. Það er sérstakt form - E-104- sem þarf að fylla út hjá spænska almannatryggingarkerfinu og þetta skjal þarf að sýna hjá Sjúkratryggingum Íslands því ella mun viðkomandi þurfa að greiða reikninginn frá íslenska heilbrigðiskerfinu að fullu án nokkurar niðurgreiðslu. Hins vegar er það svo að íslenska sjúktratryggingarkortið gildir í 6 mánuði fyrir þá sem eru að flytjast búferlum til Spánar en þó þannig að þegar viðkomandi hefur flutt lögheimilið til Spánar þá þarf að skipta út evprópska sjúkratryggingarkortinu fyrir svokallað SIP kort sem er spænska sjúkratryggingarkortið.  

Golf- og dekurferð til Ívars Haukssonar - Fréttatilkynning 13.02.2010

Eins og áður hefur verið birt hér á síðunni hefur Ívar Hauksson PGA golfkennari fært sig um set og hefur tekið við yfirkennarastöðu á golfsvæðinu „Fairplay Golf & Resort“ á suður Spáni. Mikil eftirsjá er af Ívari frá því hann fór frá Costa Blanca ströndinni og hafa margir íslenskir golfarar leitað eftir því að komast í kennslu til Ívars á Suður Spáni. Af því tilefni getum við nú boðið upp á golf- og dekurpakka fyrir íslenska golfara sem vilja keyra niður til Suður Spánar og upplifa fimm stjörnu golfsvæði með öllu sínu besta.  Við hjá Costablanca.is og Ívar Hauksson getum nú  boðið upp á golfpakka fyrir aðeins 161 evrur pr mann á sólarhring og er þá allt innifalið og óþarfi að taka upp veskið á svæðinu. Nánar tiltekið er innifalið:
ü  GISTING – miðað við 2 saman í herbergi
ü  MORGUNVERÐUR
ü  HÁDEGISVERÐUR
ü  KVÖLDMATUR „ A LA CARTE“
ü  ALLIR DRYKKIR ÚT FERÐINA HVAÐA DRYKKUR SEM ER HVENÆR SEM ER
ü  AÐGANGUR AÐ 2000m2 SPA VERÖLD, AQUAMETIC SUNDLAUG, SAUNA, HAMMAN
ü  AÐGANGUR AÐ JACUZZI, HVÍLDARSAL OG VÍTAMÍN BAR
ü  AÐGANGUR AÐ TENNISVÖLLUM
ü  AÐGANGUR AÐ LÍKAMSRÆKTARSAL
ü  ÓTAKMARKAÐ GOLF MEÐ RAFMAGNSKERRU
ü  EINN PENINGUR Á DAG Í BOLTAVÉL Á ÆFINGASVÆÐI
ü  INNIBÍLASTÆÐI
ü  ÞRÁÐLAUST  INTERNET
ü  MINI BAR Á HERBERGJUM
Sjá má myndir og umfjöllun hér
Áhugasamir geta haft samband við Bjarna í gegnum bjarni@costablanca.is en unnt er að skipuleggja hópferð Íslendinga frá Costa Blanca svæðinu ef áhugi er fyrir því.

 

Valentínusardagur - Bluestónleikar á Mango - Fréttatilkynning 11.02.2010

 Næstkomandi sunnudag er Valentínusardagurinn og að því tilefni mun Mango bar halda Blues tónleika með Jose og Nico en þeir hafa áður slegið í gegn með eftirminnilegum tónleikum á Íslendingabarnum Mango bar í Cabo Roig. Þessi snillingar ætla að leika Blues af fingrum fram frá kl 16:00 til kl 19:00 og jafnframt mun Mango sjálfur reiða fram kvöldverð fyrir aðeins 6 evrur. Allir Íslendingar á svæðinu eru hvattir til að mæta.    

<< Byrjun < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Nsta > Endir >>

 
Logobíll
Smáauglýsingar
NIE númer
Ljósmyndun
RÚV á Spáni
Modemnet
Caruso á Spáni
Mangóbar