|
Rolling Stones tónleikar - Fréttatilkynning 08.08.06 |
|
Þann 16. ágúst næstkomandi eiga Íslendingar sem staddir eru á Costa Blanca svæðinu möguleika á að skella sér á tónleika með The Rolling Stones. Tónleikarnir verða í El Ejido (Almería) en það er í um 2,5 klst. akstri frá Torrevieja. Enn eru lausir miðar á nokkrum svæðum á tónleikasvæðinu og er unnt nálgast miða á netinu. Einnig getum við verið fólki innan handar með að útvega miða og gefa leiðbeiningar um staðsetningu. Vinsamlegast sendið okkur póst á info@costablanca.is. Kíkið einnig á www.rollingstones.com ykkur til fróðleiks. |
|
|
Haustferð 2006 - Fréttatilkynning 03.08.06 |
|
Margir þekkja hinar margrómuðu haust- og vorferðir sem skipulagðar hafa verið af Ágústu Pálsdóttur sem búsett hefur verið á Costa Blanca svæðinu í mörg ár. Nú í október eða nánar tiltekið frá 9 - 13 október verður 5 daga ævintýraferð um Katalóníu undir leiðsögn Ágústu. Farið verður m.a. til Andorra, Barcelona og í hinn ævaforna bæ Tortosa þar sem gist verður í márakastala. Innifalið í verði er gisting á Parador hótelum í 4 nætur ásamt morgunverði, 3ja rétta kvöldmáltíð alla daganna, rúta og leiðsögn. Nánari upplýsingar um ferðatilhögun og verð má finna hér eða senda fyrirspurn á Ágústu í info@perlaholidays.com. Bóka þarf fyrir 12. ágúst næstkomandi. |
|
|
Flugrútan - auðveldara en þú heldur |
|
|
Depeche Mode og Bryan Adams - Fréttatilkynning 07.07.2006 |
|
Stórpopparinn Bryan Adams mun fylgja eftir útgáfu síðustu breiðskífu sinnar "Anthology" með tónleikum á Benidorm þann 29.júlí næstkomandi. Tónleikarnir eru hluti af tónleikaröð BM06 þar sem Mark Anthony mun m.a. koma fram síðar á árinu. Tónleikar Bryan Adams eru á "Foietes" leikvanginum og byrja kl 20:00 en Bryan Adams mun stíga á svið um 22:30 eftir að nokkrar upphitunahljómsveitir hafa tekið lagið.
Hin sívinsæla hljómsveit Depeche Mode mun einnig halda tónleika á Costa Blanca svæðinu í júli eða nánar tiltekið þann 25. júlí í "Parque Antonio Sonia" í Torrevieja. Tónleikarnir eru hluti af tónleikatúrnum þeirra "Angle tour" og munu þeir stíga á svið um kl 22.00 eftir að nokkrar upphitunarhljómsveitir hafa spilað frá kl. 20:00. Tónleikarnir verða teknir upp og verða CD-diskar seldir strax eftir tónleikana.
Miða á báða þessa tónleika má nálgast í forsölu í stórmagasinunum Corte Ingles - Carrafour eða í bönkunum Servicam eða ServiCaixa. Miðaverð er frá 30 evrum pr mann í forsölu. |
|
|
Hert viðurlög - Fréttatilkynning 05.07.2006 |
|
Um síðustu mánaðarmót tóku í gildi á Spáni breytt og hert viðurlög við umferðarlagabrotum. Íslenskir ökumenn eiga von á því að vera mikið varir við spænsku umferðarlögregluna "Guardia Civil" við helstu stofnbrautir við bæi og borgir á Costa Blanca svæðinu. Spænsk stjórnvöld hafa hrint af stað mikilli upplýsingarherferð í kjölfar þessara breytinga og má verða sér úti um upplýsingar á vefsíðunni www.permisoporpuntos.es Þar sem allar þessar upplýsingar eru á spænsku höfum við á costablanca.is tekið saman helstu atriði er geta varðað íslenska ökumenn í umferðinni á Spáni. |
|
Read More...
|
|
|
Velkominn Eidur til Spánar - Fréttatilkynning 15.06.06 |
|
Við óskum Eiði Smára til hamingju með að vera kominn til Spánar. Í dag skrifaði Eiður undir 4ra ára samning við stórliðið Barcelona og er nokkuð ljóst að nú er Eiður kominn í hóp þeirra allra bestu. Hvernig væri nú að skella sér á Nou Camp heimavöll Barcelona næsta haust og horfa á Eið okkar etja kappi við bestu knattspyrnumenn heims. Nú er lítið mál að fljúga beint til Alicante, leigja sér bílaleigubíl og upplifa einstaka stemningu í 5 klst fjarlægð. Sendu okkur fyrirspurn á info@costablanca.is og við leggjum þér lið við að útvega gistingu, bílaleigubíl og miða á völlinn. Sjáið allt um Eið á heimasíðu Barcelona. |
|
|
Símakostnaður ferðalanga á Spáni- Fréttatilkynning 03.06.06 |
|

Flestir Íslendingar taka gsm-símann með sér til Spánar en alltof mörg dæmi eru þess að íslenskir ferðamenn átti sig ekki á þeim símakostnaði sem hlýst af símanotkun erlendis. Samkvæmt upplýsingum frá íslensku símafyrirtækjnunum er að öllu jöfnu ódýrara að láta hringja í sig heldur en að hringja sjálfur heim. Þegar hringt er í íslenskan farsíma í útlöndum borgar sá sem hringir sama taxta og innanlandssímtal en viðtakandinn borgar þann kostnað sem fylgir því að hringja á milli landa. Einnig er vert að benda á það að þegar hringt er í talhólf frá útlöndum er það jafn dýrt og að hringja heim. |
|
Read More...
|
|
|
Á tónleika með Sting - Fréttatilkynning 02.06.06 |
|
Þann 30. júní næstkomandi mun stórpopparinn Sting halda tónleika hér á Costa Blanca svæðinu og eru tónleikarnir hluti af tónleikaferðalagi hans um Evrópu. Tónleikarnir verða haldnir á "Estadio Carlos Belmonte" leikvanginum í Albecete sem er í 20 min akstri frá Torrevieja. Við hjá Costablanca.is getum útvegað nokkra miða á tónleika með þessum magnaða tónlistarmanni. Frekari upplýsingar á info@costablanca.is |
|
|
Motocross á Costa Blanca - Fréttatilkynning 01.06.2006 |
|
Þó nokkuð er um motocross brautir á Costa Blanca svæðinu en í Albacete sem er lítil borg inni í landi er mekka motocross manna. Þar finnast margar brautir þar sem haldin hafa verið alþjóðleg stórmót í motocrossi. Nokkur aukning hefur verið á því að íslendingar hafi ferðast til Costa Blanca svæðisins til að fara í motocross skóla en einn virtasti skóli heims, í eigu fyrrum heimsmeistara í motocrossi, hefur verið starfræktur á Costa Blanca svæðinu. Áhugasamir sendið fyrirspurnir á info@costablanca.is og við upplýsum þig frekar.
|
|
|
Bókaðu flug með Icelandair og tengiflug til Alicante |
|
|
|
<< Byrjun < Fyrri 31 32 33 34 35 36 37 38 39 Nsta > Endir >>
|