|
Tónleikar í kvöld með íslenskum tónlistarmönnum - Fréttatilkynning 10.01.2010 |
|
Íslensku tónlistarmennirnir Gunnar og Jóna Fannar sem skipa bandið "Easy" munu halda tónleika á breska pöbbnum Abbeys í kvöld. Barinn er staðsettur í La FLorida hverfinu og er þessi staður mikið heimsóttir af Íslendingum. Tónleikarnir byrja kl 22:00 og eru Íslendingar á svæðinu hvattir til að mæta. |
|
|
Vetrarlokun Caruso á Spáni - Fréttatilkynning 10.01.2010 |
|
Forsvarsmenn Caruso á Spáni vilja koma því á framfæri að veitingastaðurinn verður lokaður frá og með janúar til 25. mars 2010. Þetta er meðal annars gert vegna þess að bæjaryfirvöld eru að róta upp götunni fyrir framan staðinn og skipta um lagnir en allur aðgangur að staðnum er erfiður á meðan. |
|
|
Yfirvöld senda út viðvörun vegna ísingar og snjókomu - Fréttatilkynning 08.01.2010 |
|
Í gærdag sendu yfirvöld út viðvörun til almennings í Alicante héraði vegna helgarveðursins en viðbúnaðarstig almannayfirvalda var hækkað upp í appelsínugult. Í fyrradag byrjaði að rigna víða á Costa Blanda ströndinni og um helgina á hitastigið að lækka mikið og fara jafnvel alveg niður í frostmark og miklar líkur á snjókomu til fjalla á Costa Blanca svæðinu. Yfirvöld hvetja einnig fólk til að vera ekki mikið á ferðinni snemma morguns á laugardag og sunnudag þar sem reiknað er mikilli ísingu á vegum sem slíkar aðstæður geta verið mjög hættulegar þar sem blautar götur geta í raun verið eins og skautasvell. Við hvetjum Íslendinga á svæðinu til að taka tillit til þessara aðstæðna og fara varlega. |
|
|
Stórframkvæmdir í Alicante borg settar á bið - Fréttatilkynning 05.01.2010 |
|
Borgarstjórinn í Alicante borg, frú Sonia Castedo, opinberaði það í útvarpsviðtali að hún ætlar síðar í þessum mánuði að eiga fund í Madrid með innanríkisráðherra Spánar og krefjast skýringa á nokkrum málum. Borgarstjórinn vill fá skýringar á því hvers vegna lokahnykkurinnn við framkvæmdir á Alicante flugvelli sé ekki lengur á forgangslista ríkisstjórnar Spánar og eins hvers vegna framkvæmdir við lestarstöðina í Alicante borg liggja niðri en þessi lestarstöð á að vera endastöð á hinu nýja hraðlestarkerfi á milli Alicante borgar og Madridar höfuðborgar Spánar. Það verður fróðlegt að fylgjast með því hvaða svör koma frá spænska innanríkisráðherranum. |
|
|
Íslensk messa á þrettándanum - Fréttatilkynning 02.01.2010 |
|
Miðvikudaginn 6. janúar verður jóla- og áramótamessa í norsku sjómannakirkjunni í Torrevieja (c/ Ravel 4, urb. La Siesta). Séra Ragnheiður Karítas Pétursdóttir þjónar fyrir altari. Einsöngvari verður í messunni og við syngjum saman íslenska jóla- og áramótasálma við undirleik Jukka Hovila. Jólastund verður fyrir börnin á meðan á messunni stendur. Messan hefst klukkan 16:00. Eftir messu verður hægt að kaupa kaffi og meðlæti í kaffiteríu kirkjunnar og eiga stund saman. Vona ég að sem flestir komi í hús Drottins til að syngja saman út jólin og eiga samfélag í trú og gleði. Guð gefi ykkur öllum gleðilega hátíð og blessunarríkt komandi ár.
Ragnheiður Karítas Pétursdóttir. |
|
|
Þökkum liðið ár og gleðilegt nýtt ár. |
Starfsfólk Costablanca.is óskar öllum Íslendingum, viðskiptavinum og samstarfsaðilum nær og fjær gleðilegs nýs árs 2010 um leið og við þökkum fyrir árið 2009. Einnig óskum við ykkur öllum farsældar og velfarnaðar á endurreisnarárinu 2010. |
|
|
Flugeldasala til Íslendinga - Fréttatilkynning 28.12.2009 |
|
Sprengjuglaðir Íslendingar á Spáni ættu að geta fundið flugelda og aðra skotelda við sitt hæfi næstkomandi miðvikudag eða þann 30. desember. Á milli kl 10-11 á miðvikudaginn munu Íslendingar á Torreviejasvæðinu hittast við La Luna bar (Kiddabar áður) í Las Chismosas hverfinu og fara saman í bílalest upp til Elche þar sem starfræktar eru nokkrar flugeldasölur og verslaðir verða flugeldar fyrir gamlárskvöld. Þeir sem hafa áhuga á því að nýta þetta tækifæri og skella sér á flugeldamarkaðina eru beðnir að hafa samband við Gunna í 0034-669347981 og fá frekari upplýsingar. |
|
|
Gleðileg jól og eigið góða jólahátið. |
|
Við hjá costablanca.is viljum óska öllum viðskiptavinum og heimasíðugestum nær og fjær gleðilegra jólahátíðar.
GLEÐILEG JÓL |
|
|
Ný lögreglu- og slökkvistöð á Torreviejasvæðinu - Fréttatilkynning 21.12.2009 |
|
Á fréttamannafundi í síðustu viku tilkynnti bæjarstjórinn í Orihuela, Monica Lorente, að frá og með febrúar á næsta ári muni hefjast framkvæmdir á nýrri lögreglu- slökkvi- og björgunarstöð í La Zenia sem tilheyrir Orihuela Costa svæðinu. Bæjarstjórinn sagði það hafa verið bárráttumál íbúa svæðisins í mörg ár að fá þessa stöð en í henni verða staðarlögreglan (Policial Local) með aðsetur ásamt herlögreglunni (Guarda Civil) og landslögreglunni (National police). Einnig mun slökkviliðið hafa aðsetur í húsinu og strandverðirnir yfir sumartímann og Rauði Krossinn. Í kjallaranum verða jafnframt bílageymslur og fangaklefar. Þetta nýja hús verður staðsett rétt við verslunina Consum sem er á milli sveitavegarins N-332 og hraðbrautarinnar þegar keyrt er upp til Villa Martin hverfisins. Reiknað er með að framkvæmdum ljúki á haustmánuðum 2011. |
|
|
Spáð rigningu og kulda um helgina - Fréttatilkynning 18.12.2009 |
|
Veðurspáin fyrir Costa Blanca svæðið um helgina er ekki spennandi en spáð er rigningu og að hitastigið geti farið niður í 5 stig við ströndina um daginn. Strax eftir helgina á þó að létta til og hitastigið aftur að hækka upp í 2ja stafa tölu. Á aðfangadag er spáð um 20 stiga hita og sól og því ljóst að þeir Íslendingar sem koma til Spánar núna um jólin munu fá bæði íslenskt og spænskt veður næstu daga. |
|
|
|
<< Byrjun < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Nsta > Endir >>
|