|
Spánn er vinsælasti áfangastaðurinn hjá Íslendingum - Fréttatilkynning 04.12.2009 |
|
Fyrir stuttu síðan gaf Hagstofa Íslands út skýrslu um Ferðavenjurannsóknir 2007-2008 og er mjög fróðlegt að lesa þessa skýrslu og rýna í tölur. Í skýrslunni kemur fram að Spánn var algengasti áfangastaður Íslendinga í ferðalögum erlendis á tímabilinu maí 2007 til apríl 2008. Á þessu tímabili ferðuðust um 72.000 Íslendinga til Spánar en fyrir um 10 árum síðan var Bretland vinsælasti áfangastaðurinn. Einnig kemur fram að hlutfall pakkaferða var mun hærra til Spánar en til annarra landa en um 30% flugbókana til Spánar voru pakkaferðir og á aldursbilinu 64-75 ára var hlutfallið komið upp í 60% . Einnig er ljóst að íslenskir ferðalangar dvelja mun lengur á Spáni en í öðrum löndum en á þessu tímabili var meðaldvalarlengd á ferðalögum til Spánar um 12 dagar á meðan meðaltalið yfir utanlandsferðir almennt var um 9 nætur í hverri ferð. Lesa má skýrsluna með því að smella hér. |
|
|
Breytingar á hittingi hjá Íslendingum - Fréttatilkynning 03.12.2009 |
|
Næstkomandi miðvikudag, 9. des verður síðasti dagurinn sem sundlaugarbarinn í Mimosas verður opinn. Mæðginin þar eru að fara í frí í 2 mánuði. Íslendingar á svæðinu hafa því fundið nýjan stað fyrir hittinginn, félagsvist og mini-golf keppnina. Félagsvistin flyst yfir á mánudaga frá og með 14. des. og verður á La Luna Barnum kl. 14.Hittingurinn verður einnig þar á föstudögum. Mini-golfið munu Íslendingar spila í Quesada á fimmtudögum kl. 14 frá og með 10.des. Fyrir þá sem ekki vita hvar völlurinn er, ætla Sverrir og Sigga að vera fyrir utan hliðið á sundlaugarbarnum kl. 13.30 þann 10. des. og aka á undan. Hlökkum til að sjá ykkur öll á nýjum stöðum og tímum næstu tvo mánuði, en sundlaugarbarinn mun opna aftur um miðjan febrúar, og verður það tilkynnt síðar. |
|
|
Íslensk jólabúð opnar á Torreviejasvæðinu - Fréttatilkynning 30.11.2009 |
|
Fyrir nokkru opnaði ný jóla- og gjafavöruverslun, Take a Look, sem er staðsett mitt á milli La Zenia hringtorgsins og Cabo Roig hringtorgsins við N332 veginn. Verslunin býður uppá allskyns jólavörur eins og jólaskraut, jólagjafir, jólatré, jólapappír, jólaleikföng, kerti, kertastjaka osfrv og sér til þess að allir gangi út í jólaskapi. Eigendur verslunarinnar eru íslenskar athafnakonur sem hafa verið búsettar á Spáni í nokkur ár eða þær Jóna og Hafdís. Að þeirra sögn munu þær einnig bjóða upp á föndurnámskeið fyrir alla þá sem vilja. Þær stöllur bjóða alla Íslendinga velkomna í en það er alltaf heitt á könnunnu hjá þeim og boðið upp á brandy og sherry með. Nú er um að gera að skella sér í jólaleiðangur og versla jólavörur á frábæru verði. Nýjar vörur í hverri viku. Nánari upplýsingar veita Jóna / Hafdís í síma 667026112. Til hamingju stelpur. Sjá má fleiri myndir hér |
|
|
Rigning og líkur á jólasnjó - Fréttatilkynning 29.11.2009 |
|
Í dag, fyrsta í aðventu, er rigning og ekki nema um 10-14 stiga hiti á Costa Blanca svæðinu en létta mun til strax með kvöldinu og verða orðið heiðskýrt strax á morgunn. Spænska veðurstofan gaf út viðvörun í gærkvöldi um að í dag gæti verið vindasamt víða á Costa Blanca svæðinu og verið víða snarpar vindhviður. Einnig gaf Veðurstofan út þá viðvörun að víða til fjalla gæti fallið snjór og því hvítnað til fjalla. |
|
|
Íslenskar kleinur og saltfiskur - Veljum íslenskt - Fréttatilkynning 27.11.2009 |
|
|
Fjölgun Íslendinga í atvinnurekstri á Spáni - Fréttatilkynning 26.11.2009 |
|
Hér á síðunni hefur verið nokkuð áberandi undanfarnar vikur og mánuði hvað Íslendingar hafa verið duglegir að koma sér á framfæri í eigin atvinnurekstri á Spáni og ætlum við að halda áfram að gera því góð skil. Kraftur og dugnaður Íslendinga er aðdáunarverður en ljóst er að aukning hefur verið á búferlaflutningi Íslendinga til Spánar og þó að atvinnuleysið á Spáni sé í hæstu hæðum eða um tæp 20% þá er ljóst að slíkar tölur draga ekki úr Íslendingunum enda mikil tækifæri á Spáni í alls konar rekstri.Við viljum hveta alla Íslendinga sem eru komin út í einhvers konar rekstur á Spáni að láta vita af sér og við hjá Costablanca.is getum aðstoðað við að láta vita af ykkur. |
|
|
Fréttatilkynning frá Mango bar í Cabo Roig |
|
Okkur barst eftirfarandi fréttatilkynning í dag frá íslendingabarnum Mango bar/grill sem er staðsettur í Cabo Roig:
Mango bar hefur nú tekið upp á því að bjóða viðskiptavinum sínum upp á lifandi tónlist og mat með sex daga vikunnar. Ekki missa af þessum tónlistarviðburðum sem í boði eru en búið er að setja saman metnaðarfulla dagskrá þar sem frábærir tónlistarmenn koma fram. Nefna má lifandi blús á fimmtudagskvöldum sem hefur svo sannarlega slegið í gegn. Frank Sinatra og Santana tónlist á miðvikudagskvöldum. Karókíkvöld á laugardagskvöldum. Rokk og blús á þriðjudagskvöldum, BBQ party á föstudagskvöldum með lifandi tónlist og þannig mætti lengi telja. Kíkið á dagskránna með því að smella hér. |
|
|
Nýir aðilar koma að rekstri Terra Mitica - Fréttatilkynning 24.11.2009 |
|
Það hefur verið gert opinbert að stærstu eigendur skemmtigarðsins Terra Mitica, CAM bankinn, Bancaja bankinn og Valencia sýsla, hafa til skoðunar 3 tilboð frá fyrirtækjum í afþreyingariðnaðinum sem vilja leigja garðinn til lengri tíma. Tilboðin hljóða upp á langtímaleigu en með kauprétti á fimm til tíu ára tímabili. Í vikunni verða gefnar frekari upplýsingar um þessi leigutilboð en Terra Mitica hefur átt í gífurlegum fjárhagserfiðleikum og sem dæmi má nefna þá tapaði garðurinn um 2,5 milljarð ísl króna í fyrra en gestum garðsins fækkaði um 100.000 manns 2008. Að sögn núverandi eigenda er búið leggja í garðinn frá upphafi um 80 milljarða íslenskra króna. |
|
|
Skötuveisla á Mangobar - Fréttatilkynning 23.11.2009 |
|
Í dag er nákvæmlega mánuður í Þorláksmessu og að því tilefni hafa íslensku eigendur Mangobar tilkynnt að íslensk skötuveisla verður á Mangobar eftir hádegi þann 23. desember. Hin vestfirska skata kemur beint úr eldhúsinu hjá Úlfari Eysteinssyni á veitingastaðnum Þremur Frökkum en með henni mun koma hnoðmör og þrumari. Mango sjálfur sem er lærlingur Úlfars mun standa vaktina á Mangobar og matreiða skötuna ofan í sólgna Íslendinga og aðra gangandi vegfarendur þar til birgðir endast en verðið er 25 evrur pr mann með bjór. Íslenskt brennivín verður einnig á boðstólnum. Vissara er að bóka í síma (0034) 966-188183 svo þú missir ekki af enn einu partýinu á Mangobar. |
|
|
Íslenski Utanríkisráðherrann heimsækir Spáni - Fréttatilkynning 23.11.2009 |
|
Eftirfarandi frétt birtist á vef Utanríkisráðyneytisnins í morgunn:
"Össur Skarphéðinsson utanríkisáðherra hefur undanfarna daga verið í vinnuheimsókn á Spáni, þar sem hann fundaði með spænskum ráðamönnum og kynnti sér spænskan sjávarútveg. Spánverjar taka eins og kunnugt er við formennsku í Evrópusambandinu af Svíum nú um áramót.Utanríkisráðherra átti kvöldverðarfund með Miguel Angel Moratinos utanríkisráðherra og æðstu embættismönnum ráðuneytisins. Hann átti einnig fund með Evrópumálaráðherranum Diego Lopez Garrido í Madrid og var boðið í spænska þingið þar sem hann átti fund með formanni evrópunefndar þingsins, Manuel Arias Canete og oddvita sósíalistaflokksins í nefndinni, Juan Moscoso. Þá fundaði ráðherra og fylgdarlið með forystumönnum spænska vinnuveitendasambandsins og sérfræðingum í sjávarútvegsráðuneytinu.
Þá hélt utanríkisráðherra til Vigo á norð-vesturströnd Spánar þar sem eru höfuðstöðvar spænsks sjávarútvegs. Þar hitti hann forystumenn útgerðarmanna og fiskiðnaðarins, borgarstjóra Vigo og hafnarstjóra og athafnamenn sem eru í viðskiptum við íslensk fyrirtæki. Í Vigo átti ráðherra fundi með formanni og framkvæmdastjóra samtaka útvegsmanna, forystumönnum fiskiðnaðarins, og fulltrúum íslenskra fiskútflytjenda. Þá hitti hann Abel Caballero borgarstjóra Vigo og Corinu Porro hafnarstjóra sem áður var borgarstjóri. Þá átti ráðherra fund með Alfonso Paz-Andrade varaforseta Pescanova og upphafsmanni sjávarútvegssýningarinnar í Vigo. |
|
|
|
<< Byrjun < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Nsta > Endir >>
|